Fótbolti

Stúlkurnar fengu skell gegn Þjóðverjum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Stúlkurnar áttu erfiðan fyrsta leik.
Stúlkurnar áttu erfiðan fyrsta leik. vísir/stefán
Stúlkurnar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta skipað leikmönnum 17 ára og yngri töpuðu fyrsta leik sínum á EM sem fram fer hér á landi.

Okkar stúlkur fengu skell gegn firnasterku liði ÞJóðverja, 5-0, en staðan í hálfleik var 3-0 fyrir þýska liðinu.

Spánn og England gerðu 1-1 jafntefli í sama riðli, en íslenska liðið er í mjög erfiðum riðli.

Í B-riðlinum vann Frakkland 1-0 sigur á Írlandi og Sviss og Noregur gerðu 2-2 jafntefli.

Leikið var í Grindavík í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×