Grískir þingmenn hafa brugðist ókvæða við tilboði stjórnvalda til kröfuhafa Grikklands vegna skuldavanda ríkisins. Forseti þingsins segir að tilboði stjórnvalda verði hugsanlega hafnað í þinginu. Með því skyggði hann á vonir um að samkomulag gæti náðst á næstunni.
Leiðtogar evrusamstarfsins fögnuðu tilboði Grikkja í gær og sögðu það vera góðan grunn á samkomulagi um að veita Grikkjum aðgang að neyðarfé og koma í veg fyrir mögulegt gjaldþrot ríkisins. Markaðir lifnuðu einnig við og hækkuðu víða. Virði evrunnar lækkaði þó í dag vegna ótta um að samkomulag kæmist ekki í gegnum gríska þingið, samkvæmt Reuters fréttaveitunni.
Ríkisstjórn Alexis Tsipras var kosin til valda í janúar á því loforði að draga úr aðhaldsaðgerðum í Grikklandi. Hans bíður nú það erfiða verkefni að halda bæði kröfuhöfum í Evrópu og flokksmeðlimum sínum í Grikklandi ánægðum. Án þess mun enginn samningur nást.
Þingmenn Syriza flokksins segja tilboð Tsipras um að hækka meðal annars skatta skatta vera legstein Grikklands. Þingmaðurinn Alexis Mitropoulos segir forsætisráðherrann þurfa að útskýra hvers vegna samningaviðræðurnar „hafi misheppnast“ og segir tillögurnar ekki vera í samræmi við þeirra stefnu.
Þrjár stofnanir eru í forsvari fyrir kröfuhafa Grikklands, AGS, Seðlabanki Evrópu og framkvæmdaráð ESB. Starfsmenn þeirra fara nú yfir tilboð Grikkja og athuga hvort að með því megi gera efnahag landsins sjálfbæran.
Mögulegt er að þeir fari fram á frekari aðhaldsaðgerðir.
Grikkir reiðir yfir tilboði stjórnvalda til kröfuhafa

Tengdar fréttir

Óttast að gert verði áhlaup á gríska banka
Stjórnvöld í Rússlandi íhuga lánveitingar til Grikkja til að bjarga þeim úr fjárhagsvandræðum.

Enn ein ögurstundin leið hjá
Grikkir sendu á síðustu stundu rangt skjal til Evrópusambandsins.

Grikkir lögðu fram nýjar tillögur
Leiðtogar Evrópu ræða nú framtíð Grikklands og skuldavanda ríkisins.