Ford VelociRaptor frá Hennessey Finnur Thorlacius skrifar 25. júní 2015 13:55 Hennessey VelociRaptor ber óneitanlega svip hins heitna Ford Excursion.
Breytingafyrirtækið Hennessey, sem þekkt er fyrir að breyta Ford bílum í vel útlítandi kraftatröll hefur nú breytt þessum Ford F-250 bíl í 8 sæta og 650 hestafl tryllitæki sem gaman væri að ferðast í á hálendi landsins nú í sumar. Hennessey hefur bæði byggt yfir pallinn og lengt bílinn, auk þess sem innréttingin hefur fengið viðeigandi yfirhalningu. Mesta breytingin er þó væntanlega í vélarhúsinu. Með þessum breytingum er þessi bíll orðinn býsna líkur Ford Excursion, sem Ford hefur nú hætt að framleiða og margir hafa grátið. Þessar breytingar Hennessey kosta enga smámuni því heildarverðið er 160.000 dollarar, eða ríflega 21 milljón króna. Ford F-250 Lariat með fjórum hurðum og sæti fyrir 5 kostar um 50.000 dollara. Einhverjir hafa velt fyrir sér hvort það sé 110.000 dollara virði að bæta við einni sætaröð og fáeinum hundruðum hestafla fyrir þennan bíl. Líklega fæstir og það gera þeir hjá Hennessey sér örugglega grein fyrir, enda ekki mörg eintök framleidd fyrir þann þrönga hóp. En gerðarlegur er hann.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Vísbendingar um aukna kjörsókn Innlent