Stutt hlé var gert á tónleikunum eftir að söngvarinn féll niður en skömmu síðar tilkynnti hann áhorfendum að hann hefði að öllum líkindum fótbrotnað. Hann sagðist því næst ætla upp á spítala til að fá viðeigandi læknisaðstoð en lofaði áhorfendum að hann myndi snúa aftur. Á meðan að Grohl var á spítala hélt hljómsveitin þó áfram að spila og trommarinn Taylor Hawkins sá um að syngja þekktar rokkábreiður.
Dave Grohl stóð við orð sín og eftir að gert hafði verið að sárum hans mætti hann aftur á svið og fékk sér sæti á stól og var hann þá með löppina í gipsi. Þannig kláraði Grohl tónleikana. Enn á þó eftir að koma í ljós hvað hljómsveitin gerir varðandi tónleika sína á næstunni en fyrirhugaðir eru nokkrir risatónleikar með Foo Fighters á næstu vikum.
Thank you Gothenburg. That was amazing.
Posted by Foo Fighters on Friday, 12 June 2015