Sport

Federer úr leik á opna franska

Federer í leiknum í gær.
Federer í leiknum í gær. vísir/getty
Einn besti tenniskappi heims, Roger Federer, féll úr leik í átta manna úrslitum opna franska meistaramótsins í tennis í gær.

Hann tapaði þá í þrem settum, 6-4, 6-3 og 7-6, gegn Stan Wawrinka. Þeir höfðu mæst fjórum sinnum áður á stórmóti og aldrei hafði Wawrinka tekist að sigra.

Þeir eru miklir félagar enda báðir frá Sviss.

Wawrinka mun mæta Jo-Wilfried Tsonga í undanúrslitunum en Tsonga lagði Japanann Kei Nishikori í sínum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×