Fótbolti

KA-menn enn taplausir eftir sigur á Gróttu

Bjarni Jóhannsson er í 2. sæti með lið sitt eftir fjóra leiki.
Bjarni Jóhannsson er í 2. sæti með lið sitt eftir fjóra leiki. mynd/heimasíða KA
KA er enn taplaust í 1. deild karla eftir leik liðsins í dag gegn Gróttu á útivelli. Lokatölur urðu 1-0 fyrir KA en leikið var á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi.

Ævar Ingi Jóhannesson skoraði sigurmark KA í leiknum en þetta var fjórða mark hans á leiktíðinni í jafnmörgum leikjum.

KA er því með 10 stig, tveimur stigum á eftir Þrótti sem situr á toppi deildarinnar eftir sigur á Ólafsvíkur Víkingum í gær. Grótta er hins vegar í neðsta sæti deildarinnar og hefur enn ekki skorað mark í fjórum fyrstu leikjum tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×