Metmánuður hjá Porsche Finnur Thorlacius skrifar 13. maí 2015 14:03 Sportjeppinn Macan á sinn þátt í velgengni Porsche á heimsmarkaði.
Ekkert lát er á góðu gengi Porsche á heimsvísu. Nýliðinn apríl reyndist sá söluhæsti í sögu fyrirtækisins, sem afhenti 21.500 eigendum nýjan Porsche í mánuðinum. Þetta magn svarar til 32% aukningar í sölu miðað við sama mánuð árið 2014. Heildarsala fyrstu fjóra mánuði ársins er nú orðin 72.500. “Okkur lánaðist að virkja þann góða meðbyr sem fyrstu mánuðir ársins veittu okkur og þökkum það þeirri breiðu línu sem aðdáendum Porsche stendur til boða,” segir Bernhard Maier, yfirmaður markaðsmála hjá Porsche AG. “ Nýi Boxster Spyder sportbíllinn, sem við frumsýndum í New York í byrjun aprílmánaðar, er lýsandi dæmi um þann ófrávíkjanlega metnað sem einkennir sportbílaframleiðslu okkar og viðskiptavinir Porsche um allan heim kunna að meta.” Það er sama hvar borið er niður á mörkuðum heimsins, sala aprílmánaðar 2015 sló alls staðar met. Í Kína t.d. nam söluaukningin 46%, miðað við apríl í fyrra. Aukningin í Bandaríkjunum nam 28% og dreifist það jafnt á allar gerðir; 911, Boxster, Cayman, Cayenne, Macan og Panamera. Sömu sögu er að segja af velgengni sportbílagoðsagnarinnar 911, þar sem um 16% söluaukningu er að ræða.
Mest lesið Setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent