Ramos: Ég spilaði illa Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2015 08:30 Sergio Ramos átti ekki mikið í Andrea Pirlo og félaga á miðjunni hjá Juventus. vísir/getty
Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid, var fyrsti maðurinn til að viðurkenna að hann spilaði illa í tapinu gegn Juventus í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi. Ramos, sem er varnamaður, hefur spilað á miðjunni í undanförnum deildarleikjum vegna meiðsla lykilmanna og var á miðjunni í 2-1 tapinu í Tórínó í gær.Sjá einnig:Tévez tryggði Juve sigur á Real Madrid | Sjáið mörkin Spánverjinn missti boltann trekk í trekk og réð ekkert við hraðann í leiknum, en hann fékk ekki mikið lof fyrir frammistöðu sína. „Þetta var slakur leikur hjá okkur í heildina. Ég spilaði illa, en ég hef ekki áhyggjur af því. Ég treysti Carlo Ancelotti þjálfara og hann treystir mér,“ sagði Ramos við fréttamenn eftir leik. „Við eigum seinni leikinn eftir og getum komist áfram. Á miðjunni þarf maður að hlaupa meira, en ég vil ekki benda á nein einstaklingsmistök.“ „Það verður ekki erfitt að spila betur á Santiago Bernabéu næsta miðvikudag en við gerðum í kvöld. Ég er viss um að allt mun breytast. Það er ekki í eðli mínu að gefast upp,“ sagði Sergio Ramos.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Sjá meira