Thiago: Messi myndi skora 25 mörk þó hann væri markvörður Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. maí 2015 14:00 Thiago Alcantara og Lionel Messi voru áður samherjar hjá Barcelona. vísir/getty
Thiago Alcantara, Katalóninn í liði Bayern München, væri enn hjá Barcelona hefði Pep Guardiola ekki sagt upp störfum sem stjóri liðsins. Guardiola yfirgaf Barcelona sumarið 2012 og tók sér þá árs frí frá þjálfun. Hann hafði þá unnið fjórtán titla á fjórum árum með Börsunga. Skömmu eftir að Guardiola tók við Bayern lokkaði hann Thiago, einn efnilegasta miðjumann heims, til Bæjaralands. Hann stal leikmanninum í raun fyrir framan nefið á Manchester United. Þeir félagarnir eru staddir heima í Katalóníu þar sem þeir mæta Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. „Pep hefur alltaf haft mikla trú á mér og ég sömuleiðis hef trú á honum. Ef hann væri enn þjálfari Barcelona þá væri ég líklega enn leikmaður Barcelona,“ segir Thiago í viðtali við enska blaðið Independent. „Það hjálpar samt engum að skoða fortíðina. Ég er bara heppinn að vera með Pep hjá Bayern núna.“ Spánverjinn hefur eðlilega fátt annað en góða hluti að segja um Lionel Messi að segja sem er sjóðheitur um þessar mundir. „Hann er að spila aðeins aftar á vellinum en er samt búinn að skora 38 mörk í spænsku deildinni. Hann gæti spilað í marki en samt skorað 25 mörk,“ segir Thiago.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira