Heather Marks á forsíðu Glamour 7. maí 2015 16:01 Fyrisætan Heather Marks prýðir forsíðu Glamour í forsíðuþætti eftir Silju Magg.
Maíblað Glamour kemur í allar helstu verslanir á morgun. Forsíðuna í þetta sinn prýðir fyrirsætan Heather Marks í glæsilegum tískuþætti eftir Silju Magg. Forsíða annars tölublað íslenska Glamour bætist í góða ferilskrá Marks sem er stórt nafn í tískueiminum. Hún hefur verið á forsíðum blaða á borð við Elle, Marie Claire og Harpers Bazaar ásamt því að hafa gengið pallana fyrir stærstu tískuhúsin Chanel, Proenza Schouler og Marc Jacobs svo fátt eitt sé nefnt. Á rauða dreglinum.Marks er fædd í Kanada, 26 ára gömul og þykir skera sig úr hópi fyrirsætna fyrir svokallað "dúkkulegt" útlit. Hún var einungis 15 ára gömul þegar hún birtist fyrst á síðum blaðanna, þá í ekki verra blaði en ítalska Vogue. Með hönnuðinum Prabal Gurung.Marks hefur einnig verið í fjölmörgum auglýsingaherferðum fyrir risa í tískuheiminum á borð við Calvin Klein, Emporio Armani, Jimmy Choo, H&M, Kenzo og Levi´s. Á fremsta bekk hjá Herve Leger.Glamour með Heather Marks kemur í verslanir á morgun, föstudaginn 8.maí. Fylgist með Glamour á Facebook hér. Fylgist með Glamour á Instagram hér.
Mest lesið Gullfoss og Geysir í aðalhlutverki hjá Mango Glamour „Lítur út eins og 75 ára gömul kona frá Miami.“ Glamour Nýr yfirhönnuður La Perla er með nýjar áherslur Glamour Beyonce mun koma fram á Grammy verðlaununum Glamour Marokkósk páskaveisla að hætti Oddnýjar Glamour Fatastíll Celine Dion vekur verðskuldaða athygli Glamour 19 ára Kate Moss auglýsir nýjan ilm Calvin Klein Glamour Þetta er dress vikunnar hjá Glamour Glamour Tæklum rigninguna með stæl Glamour Föt og fylgihlutir frá Beyonce Glamour