Enrique: PSG getur unnið án Zlatan Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. apríl 2015 22:45 Luis Enrique, þjálfari Barcelona. Vísir/Getty
PSG mætir Barcelona í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld en þjálfari Börsunga, Luis Enrique, reiknar ekki með auðveldri viðureign fyrir sína menn. Zlatan Ibrahimovic verður í banni hjá PSG en Enrique segir að það komi ekki endilega að sök fyrir Parísarliðið. „PSG er án nokkurra sterkra leikmanna en við skulum ekki gleyma því að þeir unnu okkur þegar Zlatan var ekki með,“ sagði hann og vísaði til leik liðanna í riðlakeppninni í haust þar sem PSG vann Barcelona á heimavelli, 3-2. „Við fengum mörg færi í þessum leik og spiluðum vel. En við töpuðum. Það er því aldrei hægt að reikna með neinu fyrirfram,“ sagði Enrique en auk Zlatan verður Marco Verratti í banni. Þá er David Luiz frá vegna meiðsla og Thiago Motta er tæpur. „Við þurfum að bæta varnarleikinn okkar, svo mikið er ljóst. Þeir eru með afar sterkan leikmannahóp og sýndu enn hversu öflugir þeir eru með því að slá Chelsea úr leik í 16-liða úrslitunum.“ „Þetta verður opin rimma því liðin eru reyndar nokkuð áþekk,“ sagði Enrique.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Handbolti Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira