Ásgrímur nýr sölustjóri Mercedes-Benz Finnur Thorlacius skrifar 10. mars 2015 15:22 Ásgrímur Helgi Einarsson nýr sölustjóri Mercedes Benz hjá Öskju.
Ásgrímur Helgi Einarsson hefur verið ráðinn sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla hjá bílaumboðinu Öskju ásamt því að setjast í framkvæmdaráð fyrirtækisins. Ásgrímur starfaði hjá VÍS undanfarin 16 ár og síðustu sex ár sem deildarstjóri og sölustjóri fyrirtækisins. ,,Það er mjög ánægjulegt og um leið spennandi að taka við starfi sölustjóra Mercedes-Benz sem er stærsti framleiðandi lúxusbíla í heiminum og jafnframt elsti bílaframleiðandi heims. Mercedes-Benz hefur átt mikilli velgengni að fagna á Íslandi sem og annars staðar og er mest seldi lúxusbíllinn hér á landi undanfarin ár. Stefnan er að sjálfsögðu að halda þessum góða árangri áfram og ég hlakka til að takast á við þá áskorun,” segir Ásgrímur sem lokið hefur rekstar- og viðskiptanámi frá Endurmenntun HÍ og er löggiltur bílasali. Ásgrímur hefur starfað mikið fyrir íþróttahreyfinguna. Hann var framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar á árunum 1997-1999 og er núverandi formaður Keilufélags Reykjavíkur. Hann hefur lokið A knattspyrnuþjálfararéttindum hjá UEFA og þjálfaranámskeiði 1 hjá evrópska keilusambandinu.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent