ISIS samþykkir bandalag við Boko Haram Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2015 10:55 Abubakar Shekau og Abu Bakr al-Baghdadi.
Talsmaður Íslamska ríkisins segir að samtökin hafi samþykkt bandalag við afrísku hryðjuverkasamtökin Boko Haram. Aðferðir beggja samtakanna þykja grimmileg og miskunnarlaus, en bæði samtökin eiga einnig undir högg að sækja á sínum heimaslóðum. ISIS berst nú á mörgum víglínum í Írak og Sýrlandi, við íraska herinn og aðra aðila eins og Peshmerga sveitir Kúrda. Þar að auki gera Bandaríkin og bandamenn þeirra loftárásir gegn samtökunum. Vígamenn Boko Haram hafa verið hraktir úr fjölda bæja í Norður-Nígeríu af sameinuðu herjum nokkurra Afríkuríkja.AP fréttaveitan segir að áróðursmyndböndum Boko Haram hafi fjölgað síðustu misseri og gæði þeirra aukist. Það er sagt sýna fram á að þeir njóti aðstoðar fjölmiðladeildar ISIS. Á laugardaginn birtist á netinu hljóðupptaka af Abubakar Shekau, leiðtoga Boko Haram, þar sem hann lofaði ISIS hollustu samtakanna. Fjölmiðladeild ISIS Al-Furqan, birti í gær hljóðupptöku af Abu Mohammed al-Adnani, talsmanni ISIS, þar sem hann sagði þá taka tilboði Boko Haram og hvatti hann fólk til að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin. Sérfræðingur sem AP ræddi við sagði að þar sem sífellt erfiðara verður fyrir erlenda vígamenn að ganga til liðs við ISIS í Sýrlandi, gætu þeir þess í stað haldið til Afríku og haft samband við Boko Haram. Talið er að vígamenn Boko Haram hafi myrt um tíu þúsund manns í fyrra, en samtökin hafa í sex ár reynt að stofna sjálfstætt ríki í Norðaustur-Nígeríu, sem byggir á sjaríalögum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira