Forstjóri Shell segir andstæðinga olíuvinnslu barnalega ingvar haraldsson skrifar 12. febrúar 2015 15:15 Ben van Beurden, forstjóri Shell, segir andstæðinga vinnslu jarðefnaeldsneytis með barnalegar og óraunhæfar hugmyndir um hvernig takast megi á við hlýnun jarðar.
Ben van Beurden, forstjóri Shell segir andstæðinga vinnslu jarðefnaeldsneytis með barnalegar og óraunhæfar hugmyndir um hvernig takast megi á við hlýnun jarðar. The Guardian greinir frá.Ben van Beurden hvatti kollega sína í orkugeiranum til að láta meira í sér heyra varðandi framtíð orkunotkunar í heiminum áður en loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna færi fram í París síðar á þessu ári. Hann viðurkenndi þó að olíuvinnslufyrirtæki ættu við ákveðin ímyndarvanda að stríða þar sem sumir talsmenn olíuvinnslu hefðu ekki viljað viðurkenna að hlýnun jarðar ætti sér stað. Forstjórinn kallaði eftir meira jafnvægi í umræðuna. Það væri ekki hægt að hætta að nota jarðefnaeldsneyti og notast einungis við endurnýtanlega orkugjafa, sú heimssýn væri barnaleg. „Já, hlýnun jarðar er raunveruleg og endurnýtanlegir orkugjafar eru nauðsynlegur hluti af orkunotkun. En nei, að hætta alfarið að nota jarðefnaeldsneyti er ekki raunhæft, sagði Ben van Beurden.
Loftslagsmál Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira