Belgískur afmælisborgari Roadhouse Jóhann Óli Eiðsson skrifar 17. febrúar 2015 14:05 Afmælisborgarinn er af dýrari gerðinni. mynd/roadhouse og vísir/stefán „
Það er fáheyrt að veitingastaður nái þremur árum á sömu kennitölunni,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson kenndur við Roadhouse. Veitingastaðurinn verður þriggja ára á mánudaginn og býður upp á sérstakan afmælishamborgara af því tilefni. Sá er af dýrari gerðinni en fyrst var greint frá kræsingunni á Nútímanum.. Hann er tvöfaldur með sultuðum rauðlauk, beikoni og Roadhousemajonesi. Að auki prýða hann tvær gerðir osta, Maribo og Tindur. Rúsínan í pylsuendanum eru síðan belgísku vöfflurnar tvær sem koma í staðinn fyrir brauðið, toppaðar með hlynssýrópi og flórsykri. „Ég smakkaði hann í gær og okkur virðist hafa tekist frábærlega til með hann. Þegar þú setur svona mikið af allskonar á hann þá er alltaf hætta á því að hann verði væminn en þetta virðist vera fullkomin blanda.“ Roadhouse hefur oft fetað ótroðnar slóðir með hamborgunum sínum. Á matseðlinum má meðal annars finna kleinuhringjaborgara sem er í raun bröns hrúgað saman í eina máltíð. Á tyllidögum hefur verið boðið upp á cronut borgarann sem er með crossant kleinuhringjum í stað brauðsins og beikoni, sultuðum rauðlauk, sýrópi og fleiri kræsingum. „Þetta er í raun stóri bróðir cronutsins. Ég veit ekki hvað þetta eru margar kalóríur og ég vil ekki vita það. Ég er að velta því fyrir mér hvort við þurfum að vera með hjartastuðtæki á staðnum á meðan afmælisborgarinn er í boði,“ segir Sigurður og hlær. „Cronut-inn kemur svo aftur á matseðilinn í vor. Það er ekki hægt að vera með tvo spes borgara í einu, eldhúsið færi hreinlega á hliðina.“
Tengdar fréttir Þetta eru tíu bestu skyndibitastaðirnir í Reykjavík Lífið á Vísi fékk nokkra álitsgjafa, og mikla matgæðinga, til að velja bestu skyndibitastaðina á Stór-Reykjavíkursvæðinu. 17. október 2014 11:15 Tók 11 daga að ná frönskunum góðum „Við erum að taka þennan mat og gera hann með hjartanu,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson, einn af eigendum veitingastaðarins Roadhouse, sem opnar við Snorrabraut í dag. 18. febrúar 2012 16:00 Þetta elska Íslendingar: Laugardagsdjamm, lakkrís og lati hugsjónamaðurinn Lífið á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman sumt af því sem Íslendingum finnst best með hjálp valinkunnra álitsgjafa. 21. desember 2014 11:00 Mest lesið Sviðshöfundar blótuðu þorrann í góubyrjun Lífið „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Lífið samstarf Best að geta elt draumana saman Lífið „Ég verð að þakka þér fyrir að herma eftir mér“ Lífið Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Lífið samstarf Guðlaugur Þór kampakátur þegar listinn var kynntur Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Menning
Þetta eru tíu bestu skyndibitastaðirnir í Reykjavík Lífið á Vísi fékk nokkra álitsgjafa, og mikla matgæðinga, til að velja bestu skyndibitastaðina á Stór-Reykjavíkursvæðinu. 17. október 2014 11:15
Tók 11 daga að ná frönskunum góðum „Við erum að taka þennan mat og gera hann með hjartanu,“ segir Sigurður Karl Guðgeirsson, einn af eigendum veitingastaðarins Roadhouse, sem opnar við Snorrabraut í dag. 18. febrúar 2012 16:00
Þetta elska Íslendingar: Laugardagsdjamm, lakkrís og lati hugsjónamaðurinn Lífið á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman sumt af því sem Íslendingum finnst best með hjálp valinkunnra álitsgjafa. 21. desember 2014 11:00