Boumeddiene sést í öryggismyndavél í Tyrklandi Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2015 17:28 Boumeddiene kom til Tyrklands í fylgd manns að nafni Mehdi Sabri Belhouchine. Vísir/AFP
Nýjar myndir úr öryggismyndavél á flugvelli í tyrknesku borginni Istanbul sýna Hayat Boumeddiene fara í gegnum vegabréfsskoðun í fylgd manns þann 2. janúar síðastliðinn. Talið er að Boumeddiene sé nú að finna í Sýrlandi. Boumeddiene var unnusta Amedy Coulibaly, 32 ára Frakka, sem skaut fjóra gísla til bana í matvöruverslun í austurhluta Parísar á föstudaginn, auk franskrar lögreglukonu á fimmtudaginn. Utanríkisráðherra Tyrklands segir Boumeddiene hafa komið til Tyrklands um Sabiha Gokcen flugvöllinn þann 2. janúar frá Madríd, áður en hún hélt för sinni áfram til Sýrlands sex dögum síðar.Í frétt BBC kemur fram að fulltrúar tyrkneskra yfirvalda segi hana hafa komið inn í landið með manni að nafni Mehdi Sabri Belhouchine, sem er af norður-afrískum uppruna, og að hann hafi ekki áður verið undir eftirliti. Talið er að hann hafi haldið til Sýrlands ásamt Boumeddiene. Lögregla í Frakklandi hefur leitað Boumeddiene eftir að Coulibaly skaut lögreglukonu til bana í suðurhluta borgarinnar á fimmtudaginn, en hann er talinn hafa verið samverkamaður Kouachi-bræðranna Chérif og Said, sem skutu tólf manns til bana á ritstjórnarskrifstofum Charlie Hebdo á þriðjudaginn. Boumeddiene er talin tengjast málunum þó að hún hafi yfirgefið landið nokkru fyrir árásirnar.Hayat Boumeddiene var unnusta Amedy Coulibaly.Vísir/AFP Post by BBC World News.
Charlie Hebdo Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira