Fjöldi samsæriskenninga hafa litið dagsins ljós yfir árásunum í París og hafa meðal annars þjóðarleiðtogar opinbert slíkar skoðanir sínar.
Sjá einnig: Al-Qaeda lýsir yfir ábyrgð á árásinni á Hebdo.
Alexander Zhilin er stjórnmálafræðingur, en í sjö blaðsíðna viðtali við Komsomolskaya Pravda segir hann að leyniþjónusta Bandaríkjanna hafi framkvæmt árásina og sprengt í loft upp efnaverksmiðju í Þýskalandi í fyrra. Tilgangur þess segir hann hafa verið að beita Angelu Merkel þrýstingi vegna viðskiptaþvingana gegn Rússlandi.
Pravda er langt frá því að vera eini fjölmiðillinn í Rússlandi sem hefur haldið því fram að um samsæri sé að ræða. Daginn sem árásirnar urðu birti sjónvarpsstöðin Life News viðtal við mann sem sagði að aðgerð sérsveita Bandaríkjanna væri að ræða.
„Síðustu tíu ár hafa íslamistar verið undir stjórn einnar stærstu leyniþjónustu heimsins,“ er haft eftir viðmælenda Life News á vef Independent.
Sjá einnig: Amedy Coulibaly segist vera á vegum Íslamska ríkisins.

„Tívskinnungur vestursins er augljós,“ sagði Tayyip Erdogan á blaðamannafundi á mánudaginn. „Sem múslímar höfum við aldrei staðið með hryðjuverkum eða fjöldamorðum. Rasisma, hatursræðu og íslamofóbíu er um að kenna. Sökudólgarnir eru augljósir. Franskir ríkisborgarar gerðu árásirnar og múslimum er kennt um,“ hefur Financial Times eftir forsetanum.
Melih Cokcek, borgarstjóri Ankara, höfuðborgar Tyrklands, sagði greinilegt að Mossad, leyniþjónusta Ísrael, stæði á bakvið árásirnar til að auka hatur gegn Íslam. Hann tengdi árásirnar við það að franska þingið hefði viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt ríki í byrjun desember.
Sjá einnig: Nýtt myndband af Kouachi-bræðrunum: Héngu úr bíl og skutu á lögreglu.
Fólk hefur sett fram fjölmargar kenningar af þessu tagi úti í hinum stóra heimi, sem og hérna heima, og er víða talað um að árásirnar séu svokallaður „falskur fáni“. Þá má finna gífurlegan fjölda myndbanda á Youtube, þar sem „samsæringar“ svokallaðir, benda á ástæður þess að árásirnar séu falskur fáni, hver hafi staðið að baki þeim og hver tilgangur þeirra hafi í raun og veru verið. Sömu sögu er að segja af Google.
Þá hefur því einnig verið haldið fram að lögreglumaðurinn Ahmed Merabet, sem tekinn var af lífi fyrir utan skrifstofu Charlie Hebdo, sé í raun og veru ekki látinn og að myndbandið af morði hans hafi verið sviðsett.