Stefna að sama punkti sem kristallast á sýningunni Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 12:15 Anna Rose er með vídeóinnsetningu í húsi Hákarla-Jörundar. „
Fjórir erlendir myndlistarmenn sýna í húsi Hákarla-Jörundar í Hrísey í dag og á laugardag, Anna Rose og Jill Christine Miller frá Bandaríkjunum, Junya Kataoka frá Japan og Rie Iwatake sem fæddist í Suður–Afríku en ólst upp í Japan. Þau hafa undanfarið dvalið í gamla skólanum í Hrísey,“ segir Frosti Friðriksson. Frosti er einn félaga í Norðanbáli, samtökum sem reka gamla barnaskólann í Hrísey og gera listamönnum mögulegt að vinna þar að list sinni. Hann segir tónlistarmenn og rithöfunda hafa notað húsið gegnum tíðina, en mest sé um myndlistarmenn og þá einkum útlendinga sem dvelji þar mánuð í senn. „Íslendingar hugsa meira í helgum, kannski löngum helgum,“ segir hann. Sýning fjórmenninganna heitir Convergence/Samruni. Titillinn vísar til þess að ólíkir listamenn stefni að sama punkti sem kristallast í sýningunni sem er opin í dag, 27. nóvember frá kl. 17 til 19 og laugardaginn 29. nóvember frá klukkan 15 til 17.
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira