Hafnarfjarðarliðin mætast í níunda sinn á árinu 2014 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2014 14:45 Magnús Óli Magnússon og félagar í FH hafa bara unnið tvo af átta leikjum ársins á móti Haukum. Vísir/Daníel
Stórleikur kvöldsins í Olís-deild karla er heimsókn FH-inga til Hauka í Schenker-höllina á Ásvöllum. Leikur Hafnarfjarðarliðanna hefst klukkan 20.00. Það er jafnan mikil hátíð í Hafnarfirði í kringum leiki liðanna enda erfitt að finna meiri ríg milli félaga á Íslandi. Árið 2014 hefur þegar boðið upp á metframboð af viðureignum Hauka og FH sem mætast í kvöld í sínum níunda mótsleik á árinu. Auk deildarleikjanna og leiks í árlegu Hafnarfjarðarmóti (ekki talinn með í fyrrnefndri tölu) fór undanúrslitaviðureign liðanna í úrslitakeppninni í oddaleik og liðin mættust einnig í undanúrslitum bikarsins. Haukar steinlágu í síðasta leik á Akureyri, en FH-ingarnir eru fjórum stigum og þremur sætum á undan nágrönnum sínum í töflunni. Hvort það hjálpar FH-ingum eitthvað í kvöld verður að koma í ljós en þeir hvítu og svörtu eiga margar slæmar minningar frá Haukaleikjum ársins. Haukaliðið er nefnilega með mikla yfirburði í leikjum liðanna á árinu þar sem það hefur unnið fimm af átta leikjum þar af fjóra af fimm síðustu leikjum (Hafnarfjarðarmótið talið með) eftir að FH komst í 2-0 í undanúrslitaeinvígi liðanna í úrslitakeppninni síðasta vor. Haukarnir unnu þá þrjá leiki í röð og sendu FH-liðið í sumarfrí. FH-ingar unnu hinsvegar síðasta leik liðanna með einu marki í Kaplakrika í fyrri deildarleik liðanna á þessu tímabili en hann fór fram í lok september.
Olís-deild karla Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Jesús áfram í Stjörnunni Körfubolti Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira