Sýningin The Weather Diaries verður opnuð á morgun í Þjóðarljósmyndasafninu í Kaupmannahöfn, sem er í Svarta demantinum og hýsir líka Konunglega bókasafnið. Sýningin stendur til 21. apríl.
Að sögn Steinunnar eru ljósmyndir þeirra Cooper og Gorfer ótrúleg listaverk, nánast eins og málverk, og raunar komnar langt út fyrir hina hefðbundnu tískuljósmyndun eins og við þekkjum hana.

Innsetningarverk Steinunnar er risastórt, 5x5 m, samansett úr örsmáum einingum, sem hanga á þráðum úr loftinu og mynda samfellda heild. „Verkið lítur út fyrir að vera fatnaður, en þó ekki til að klæða sig í,“ svarar Steinunn hlæjandi þegar hún er beðin um að lýsa verkinu. „Það þurfti að bora 600 göt í loftið til að hægt væri festa þræðina og stilla verkinu svona upp,“ segir hún til nánari skýringar. Steinunn er stödd í Kaupmannahöfn til að fylgja úr hlaði listaverki sínu sem hún kallar The Space in Between.
The Weather Diaries er efalítið ein stærsta listræna sýningin sem sett hefur verið upp og hverfist um íslenska, færeyska og grænlenska fatahönnun. Norræna húsið er framleiðandi sýningarinnar.