Lífshætta í Útvarpsleikhúsinu Friðrika Benónýsdóttir skrifar 5. september 2014 11:00 Þórey byggir Lífshættu á tveimur verkum Jakobínu Sigurðardóttur. Vísir/Daníel „
Verkið er byggt á tveimur sögum eftir Jakobínu Sigurðardóttur, annars vegar smásögu sem heitir Lífshætta og birtist í Sjö vindur gráar árið 1970 og hins vegar skáldsögunni Í sama klefa frá 1981,“ segir Þórey Sigþórsdóttir leikkona, spurð um útvarpsleikrit hennar Lífshættu sem frumflutt verður í Útvarpsleikhúsinu á sunnudaginn. „Að mestu leyti er þetta texti Jakobínu, enda er það mjög flottur texti, en ég raða honum upp á nýtt og bæti inn í nokkrum atriðum.“ Það sem gerir þetta verk einstakt er stílbragð sem tæplega væri hægt að beita nema í útvarpsleikriti: Í leikritinu er notuð upptaka á rödd Jakobínu Sigurðardóttur þegar hún las sögu sína, Í sama klefa, í útvarpið árið 1989. Þannig fer Jakobína, sem lést árið 1994, með eitt aðalhlutverkið í leikritinu. Flutningurinn hefst klukkan 13 á sunnudaginn. Leikstjóri er Þórey Sigþórsdóttir og um hljóðvinnslu sá Einar Sigurðsson.
Menning Mest lesið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Hvað veistu um... Köngulóarmanninn? Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira