Martin móðgar aðdáendur 14. júlí 2014 13:30 George R. R. Martin er orðinn þreyttur á tali aðdáenda um dauða sinn. Mynd: NordicPhotosGetty
George R. R. Martin, höfundur seríunnar Song of Ice and Fire sem sjónvarpsþættirnir Game of Thrones eru byggðir á, er orðinn langþreyttur á því að aðdáendur bókanna lýsi yfir áhyggjum af því að honum endist ekki aldur til að ljúka við seríuna. Í viðtali við svissneska blaðið Tages-Anzeiger fyrir skömmu svaraði hann spurningu blaðamannsins þar að lútandi með þessum orðum: „Mér finnst það móðgandi þegar fólk fer að velta fyrir sér dauða mínum og heilsufari. Þetta fólk má fokka sér.“ Og orðum sínum til áréttingar sýndi hann blaðamanni fingurinn. Talskona Martins hefur síðan reynt að lágmarka skaðann með því að halda því fram að hann hafi ekki átt við aðdáendur sína heldur blaðamanninn, en í ljósi ýmissa fyrri ummæla Martins þykir það yfirklór ekki sannfærandi.
Game of Thrones Menning Mest lesið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið HAM boða endalok alls Tónlist Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira