Skrifborð Jóhanns hlaut verðlaun í Mílanó 30. apríl 2014 12:30 Jóhann fékk drumbana hjá Faxaflóahöfnum og síðan þurrkaði hann og heflaði um fjórðung þeirra með endurvinnslu í huga. Mynd/Aasa Charlotta Ingerardóttir
Í desember 2013 voru hægindastóllinn Andagjöf og skrifborðið EitthvaðYfir eftir Jóhann Sigmarsson valin á The A'Design Award & Competition, alþjóðlega hönnunarkeppni í Mílanó. Í síðustu viku var svo tilkynnt að hægindastóllinn hefði fengið viðurkenninguna „Runner-up for A'Design Award“ og að skrifborðið væri „A'Design Winner“ í flokki húsgagna. Í keppninni var 5.641 þátttakandi valinn úr 12.523 umsóknum frá 208 löndum. Húsgögnin voru unnin úr yfir hundrað ára gömlum viði úr Reykjavíkurhöfn, en það atvikaðist þannig að Jóhann sá í sjónvarpsfréttum að Faxaflóahafnir sf. voru að hreinsa á brott ónýta bryggjudrumba vegna breytinga í Reykjavíkurhöfn. Jóhann fékk drumbana og síðan þurrkaði hann og heflaði um fjórðung þeirra með endurvinnslu í huga. Húsgögn Jóhanns eru hluti af Miðbaugs-minjaverkefninu, sem er alþjóðlegt farandverkefni listamanna sem skapa listaverk úr endurnýttu efni úr sögulegum heimsminjum. Verkin verða sýnd á alþjóðlegum listsýningum og seld á uppboði í lok hverrar sýningar. Hluti af andvirði hvers verks mun renna í sjóð til að styrkja góð málefni á heimsvísu.
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira