Bók með ólík verk að formi og innihaldi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2014 12:00 Aftari röð: Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Inga Rósa Ragnarsdóttir, Sigríður Ásta Árnadóttir, Árný Elínborg Ásgeirsdóttir, Rannveig Garðarsdóttir. Fremri röð: Ingibjörg Magnadóttir, Helga Ágústsdóttir, Sigþrúður Gunnarsdóttir, Jóda Elín Valgerður Margrétardóttir, Þuríður Elva Jónsdóttir, Ragna Ólöf Guðmundsdóttir. Á myndina vantar Bjargeyju Ólafsdóttur og Ingibjörgu Valsdóttur. Mynd Úr einkasafni „
Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert,“ segir Jóda Elín Margrétardóttir, ein þeirra kvenna sem vinna að útgáfu bókarinnar Flæðarmáls sem birtir ólík verk að formi og innihaldi, sögur, ljóð og prósa. Höfundar þess eru átta ritlistarnemar við Háskóla Íslands. Þeir fengu til liðs við sig sex ritstjórnarnema úr sama skóla og Jóda Elín er einn þeirra. Allir nutu þeir svo leiðsagnar reynds ritstjóra, Sigþrúðar Gunnarsdóttur hjá Forlaginu. Jóda Elín segir útgáfuna algerlega sjálfstætt verk. „Við erum ekki með kynningu á okkur sem nemum heldur stendur verkið eitt og sér. Við sáum að við værum með geysilega skemmtilegt og fallegt efni og vildum skoða leiðir til að gefa það besta út. Þá kom íslenska hópfjármögnunarsíðan Karolina Fund inn í myndina.“ Stærðin á bókinni var ákveðin nokkurn veginn fyrirfram og höfundar og ritstjórar unnu saman í pörum að því að draga fram enn betri texta að sögn Jódu Elínar. „Höfundarnir eru ólíkir en textunum hefur verið raðað saman þannig að þeir mynda sérstakt flæði og eina sterka heild,“ segir hún og nefnir Ingibjörgu Magnadóttur, gjörninga- og myndlistarkonu, sem eigi heiðurinn af því. „Í þessum hópi eru flottar konur og margar þeirra hafa reynslu af skrifum og listsköpun. Við hönnum kápuna, setjum upp efnið og sjáum um allt sjálfar nema prentunina og þar skortir okkur fjármagn,“ segir hún. En eru engir karlmenn að læra ritlist og ritstjórn? „Konur eru í meirihluta í námi. Samt eru karlar líka í báðum þessum fögum en þeir eru ekki að gefa út neina bók, enda er það ekki skylda í náminu. Sigþrúður, ritstýra hjá Forlaginu, kemur að verkinu sem stundakennari. Það er frábært að fá hana inn í hópinn, hún er eldklár og þaulreynd en ekki dómínerandi heldur verður ein af hópnum.“ Til að bókin Flæðarmál verði að veruleika hafa konurnar sem sagt hafið söfnun í gegnum Karólína Fund og hvetja almenning til að leggja útgáfunni lið. Söfnunin stendur til 9. maí. Hægt er að sjá meira um málið á vefsíðunni http://www.karolinafund.com/project/view/319.
Menning Mest lesið „Þetta er engin þrautaganga fyrir mig“ Lífið Biðu í tvo tíma eftir „McDonalds“ borgurum sem strönduðu í tollinum Lífið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Tíska og hönnun Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Bíó og sjónvarp Krakkatían: Óvæntur gestur, söngleikur og dalmatíuhundar Lífið „Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira