Nýr GLE Coupe frá Benz Finnur Thorlacius skrifar 10. desember 2014 10:20 Mercedes Benz GLE Coupe.
Mercedes Benz mun kynna þennan nýja GLE Coupe á bílasýningu í Detroit í næsta mánuði. Það fer ekkert á milli mála við hvaða bíl þess nýi bíll á að keppa, þ.e. BMW X6. Hann er nauðalíkur honum og eiginlega jafn lítið fyrir augað, en þörfum Bandaríkjamanna þarf að sinna, eða það telur Mercedes Benz greinilega. Ekki er búist við magnsölu á þessum bíl en BMW hefur selt á bilinu 4.500 til 6.700 X6 bíla á hverju ári frá því að fyrirtækið kynnti hann til sögunnar árið 2008, en salan í fyrra var 5.500 bílar. BMW hefur verðlagt X6 hærra en X5 jeppann og því hagnast mjög á framleiðslu hans. Það sama ætlar Mercedes Benz að gera. Mercedes Benz GLE Coupe verður verðlagður hærra en M-jeppar fyrirtækisins, sem fást ódýrastir á 49.225 dollara. Fyrst mun Mercedes Benz kynna þennan nýja bíl með 3,0 lítra bensínvél með tveimur forþjöppum, sem skilar 362 hestöflum. Hann verður með 9 gíra sjálfskiptingu með 5 akstursstillingum, „individual, comfort, slippery, sport og sport+“. Bíllinn er með loftpúðafjöðrun með „active roll stabilization“ veltivarnarbúnaði og hann stendur á 21 tommu dekkjum.
Mest lesið Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent