Grindur McLaren og Sauber í lagi Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 19. desember 2014 22:30 Nú er bara að bíða og sjá hvernig bílarnir munu líta út á næsta ári. Vísir/getty
Bæði McLaren og Sauber hafa tilkynnt að grindurnar fyrir 2015 bíla liðanna hafa staðist árekstrarpróf FIA. McLaren undirbýr nú endurkomu Honda á næsta ári. Liðið mun einnig taka til heildar endurskoðunar aðra hluta bílsins, loftflæði og grind bílsins. McLaren vill fara að vinna keppnir aftur. Liðið hefur ekki unnið síðan 2012.Ron Dennis framkvæmdastjóri liðsins segir að liðið hafi lært margt af því að prófa framtíðar fram- og afturvængi á æfingum fyrir Abú Dabí kappaksturinn. „Hvað varðar bílinn, þá höfum við klárað öll árekstrarpróf, við erum á undan áætlun og prófanirnar í Abú Dabí gáfu okkur viðmiðunarpunkt fyrir komandi þróun á loftflæði bílsins,“ sagði Dennis. Sauber tilkynnti í gær að liðið væri búið að standast árekstrarprófin fyrir næsta ár. Það er stórt skref fyrir liðið sem hefur átt í miklum fjárhagsvandræðum í ár. Liðin geta enn gert breytingar á grindunum en ef þær verða veigamiklar þurfa liðin að standast árekstrarprófin aftur. Það gæti verið merki um litlar eða vanhugsaðar breytingar að vera svona snemma á ferðinni. Snemmbúið árekstrarpróf gæti þó líka þýtt að liðið sé búið að vinna að grindinni lengi og hönnunin sé gríðar vönduð.
Formúla Tengdar fréttir Bílskúrinn: Allskonar frá Abú Dabí Helstu atvik helgarinnar verða til skoðunar i Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi. 25. nóvember 2014 22:45 Hamilton: Alonso og McLaren verður betra samband Fernando Alonso mun ekki lenda í sömu vandræðum og hann lenti í hjá McLaren síðast þegar hann ók fyrir liðið, árið 2007. 1. desember 2014 21:45 Button áfram hjá McLaren Ekur með Fernando Alonso en Kevin Magnussen verður tilraunaökumaður. 11. desember 2014 11:56 Force India vill keppa við Williams Force India bindur vonir við framfarir sem liðið hefur þegar fundið. Markið er sett hátt. Stefnan er að keppa við Williams á næsta tímabili. 18. desember 2014 23:00 Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti Svíar áttu ekki roð í þá frönsku Fótbolti Verður áfram í Þýskalandi Fótbolti Vonarstjarna Börsunga seld til Frakklands Fótbolti Kona fótboltamanns fórnaði lífi sínu til að bjarga eins árs dóttur þeirra Fótbolti Heimsmeistari hleypur Laugaveginn Sport Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Íslenski boltinn Halldór Árna: Víkingar sáu hið fullkomna tímabil en þetta er fljótt að breytast Íslenski boltinn Íslensk dóttir á heimsleikunum í fyrsta sinn í þrjú ár Sport Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta hafa verið erfiðir mánuðir“ Fyrsti sigur Russell frá því í fyrstu keppni tímabilsins Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Allt í bál og brand í Formúlu 1 Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Fékk aftur verðlaunasæti í Formúlu 1 sex dögum eftir harða refsingu Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Sjá meira
Bílskúrinn: Allskonar frá Abú Dabí Helstu atvik helgarinnar verða til skoðunar i Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi. 25. nóvember 2014 22:45
Hamilton: Alonso og McLaren verður betra samband Fernando Alonso mun ekki lenda í sömu vandræðum og hann lenti í hjá McLaren síðast þegar hann ók fyrir liðið, árið 2007. 1. desember 2014 21:45
Button áfram hjá McLaren Ekur með Fernando Alonso en Kevin Magnussen verður tilraunaökumaður. 11. desember 2014 11:56
Force India vill keppa við Williams Force India bindur vonir við framfarir sem liðið hefur þegar fundið. Markið er sett hátt. Stefnan er að keppa við Williams á næsta tímabili. 18. desember 2014 23:00