Segir Sigga og Odd Andra sögusmettur og rógbera Jakob Bjarnar skrifar 9. desember 2014 19:13 Kristján mjólkureftirlitsmaður gefur ekki tommu eftir þó hann megi sitja undir því að hafa brotið trúnað við þá Odd Andra og Sigga.
Kristján Gunnarsson fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna deilunnar í Hörgárdal og segist ekki sjá neitt eftir því að hafa brotið trúnað, ekki sé hægt að sitja þegjandi hjá þegar fjölskylda með tvö börn sé ötuð auri. Deilurnar í Hörgárdal, sem Vísir hefur eftir bestu getu greint frá, hafa tekið óvæntan snúning og virðast þær harðna, ef eitthvað er. Vísir greindi frá því að Kristján Gunnarsson fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hefði brotið trúnað þegar hann sendi pistil til miðilsins og greindi frá því að hann hafi sem mjólkureftirlitsmaður fengið ábendingu frá þeim Sigurði Hrafni Sigurðssyni og Oddi Andra Thomassyni Ahrens, eða Sigga og Oddi Andra, um að ekki væri allt með felldu varðandi mjólkurframleiðslu hjá nágrönnum þeirra að Auðbrekku 1. En þeir hafa átt í hörðum deilum við hjónin þar, þau Bernharð Arnarson og Þórdísi Þórisdóttur bændur. Þær ábendingar hafi verið rógur, bull og vitleysa. Einar Sigurðsson, forstjóri MS, segir það vinnureglu hjá fyrirtækinu að berist ábendingar um að ekki sé allt með felldu sé það kannað, og þá þannig að ekki sé greint frá því frá hverjum ábendingin hafi komið. Það er því ljóst að Kristján braut trúnað á þeim Sigga og Oddi Andra. En, Kristján sér ekki eftir neinu. Hann sendi frá sér yfirlýsingu nú fyrir skömmu, sem sjá má í heild sinni hér neðar. Hann segist ekki telja þá félaga Sigga og Odd Andra slæma menn en áburður þeirra á hendur Auðbrekkufólkinu sé ljótur: „Þegar fólk ber sakir á ábúendur sem eru mjólkurframleiðendur og segir þá sóða og illmenni, jafnvel þó haft sé eftir öðrum en ekki séð með eigin augum (slúðursögu útbreiðsla) er líka vegið að börnunum fjórum sem eru meðlimir fjölskyldunnar og hætta á einelti og stríðni vegna "sóðana" pabba og mömmu,“ segir í yfirlýsingunni. Þá segir jafnframt að hann sé stoltur af því að hafa ekki horft þegjandi uppá heilu fjölskylduna borna ljóta sögum og honum þyki leitt ef það komi MS, því ágæta fyrirtæki, illa en réttlætiskenndin bauð honum að gera það. Yfirlýsing Kristjáns YFIRLÝSING VEGNA FYRRI SKRIFA Undirritaður vill að eftirfarandi komi fram vegna viðbragða við athugasemd vegna deilumáls þeirra Sigurðar og Andra við ábúendur í Auðbrekku. Það er jarðbundin skoðun mín að ekki eigi að hengja menn án dóms og laga, hvað þá heila fjölskyldu, í þessu tilfelli ung hjón með 4 börn. Það er einnig skoðun mín að öll mál hafi tvær hliðar. Vegna þess hve ötulir þeir félagar Sigurður og Andri voru að tjá sig í fjölmiðlum og hve einlitur málflutningur þeirra var fannst mér nóg um og ákvað að ýta aðeins ofaná geislabaugana þeirra með þeirri athugasemd sem áður var birt þar sem sagt var frá slúðursögum þeirra og rógburði í garð fyrrnefndrar fjölskyldu sem vó að heiðri þeirra sem mjólkurframleiðenda og hefði ef sönn hefði verið getað þýtt sölubann á mjólk, þannig að málið var ekkert grínsögumál. Þegar fólk ber sakir á ábúendur sem eru mjólkurframleiðendur og segir þá sóða og illmenni, jafnvel þó haft sé eftir öðrum en ekki séð með eigin augum (slúðursögu útbreiðsla) er líka vegið að börnunum fjórum sem eru meðlimir fjölskyldunnar og hætta á einelti og stríðni vegna "sóðana" pabba og mömmu. Þó nóg virðist til af fólki sem er tilbúið að láta öxina tala af vorkunnsemi við þá félaga Sigurð og Andra vil ég bara segja þetta. Ég held ekki að þeir félagar séu slæmir menn, en hafi að óhugsuðu máli farið þá leið að senda MS bréf með rætni sögum eftir aðra vegna deilna um aðkeyrslu og geti nú ekki snúið til baka úr þessum þessum leiðinlegu atburðum. Einnig vil ég að lokum segja þetta, ef það heitir að rjúfa trúnað að horfa ekki þegjandi uppá heila fjölskyldu borna ljótum sökum þá er ég stoltur af því. Og allir þeir sem hafa sagt mér að skammast mín mega þá skammast sín sjálfir fyrir dómarasætið líka þeir sem telja sig lögfróða. Að lokum, þetta mál er alls óviðkomandi MS og þykir mér miður ef ég hef í ógáti borið bensín á eld aðila sem reyna að koma höggi á það ágæta fyrirtæki, þetta er alfarið mín ákvörðun og tekin af einskærri réttlætiskennd. Kristján Gunnarsson f.v. mjólkureftirlitsmaður
Hörgársveit Nágrannadeilur Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Sjá meira