Hönnuðurinn Nickolay Lamm hefur nú fengið hinar svokölluðu Lammily-dúkkur afhentar úr verksmiðjunni og selur þær í gegnum vefsíðu sína. Markmið Lamm með dúkkunum er að sýna hvernig konur líta út í raun og veru. „Ég vil sýna börnum að raunveruleikinn getur verið „kúl“,“ segir hann í viðtali við Time.
Lammily-dúkkurnar eiga að sýna hvernig Barbie myndi líta út ef hún væri með „eðlilegar línur“. Lamm byggði líkamsbyggingu Lammily-dúkkunnar á tölfræði frá landlæknisembætti Bandaríkjanna. Hann vill sýna hvernig meðalkonan lítur út. Hægt er að kaupa sérstaka límmiða með dúkkunni og gefa dúkkunni þannig freknur, bólur og appelsínuhúð. Einnig er hægt að líma húðflúr og slit á dúkkuna.
„25 til 30 prósent fólks mun örugglega segja að þessir límmaðar séu rugl, en ég trúi því að meirihluti fólks telji þá vera góða hugmynd,“ segir hönnuðurinn.
Lamm safnaði fyrir framleiðslu dúkkunnar í gegnum hópfjármögnun á netinu. Hann setti sér það markmið að ná 11 milljónum króna. En hugmynd hans sló rækilega í gegnu og náði hann að safna rúmlega 60 milljónum.
Hægt er að panta dúkkuna á vefsíðunni Lammily.com.


