Helstu atvik helgarinnar verða til skoðunar i Bílskúrnum, léttu hliðinni á Formúlu 1 hér á Vísi.

Eftir langt og strangt tímabil, 11 unnar keppnir, 5 ráspóla og 1 stykki heimsmeistaratitil. Hvað gerði Hamilton til að gera sér dagamun á sunnudagskvöldið?
Hamilton borðaði með sínum nánustu og fór svo á skemmtistaðinn sem Mercedes liðið fagnaði á og drakk vatnsmelónusafa. Hann sagðist hafa fengið sér smá koníak „en mér líkaði ekki bragðið og drakk ekki meira en tvo sopa af því, svo þurfti ég að vakna snemma.“
Einhver hefði nú aðeins sleppt framan af sér beislinu og tekið þátt í gleðinni fram undir morgun. Faðir heimsmeistarans lofaði þó í viðtali eftir keppnina að hann ætlaði að skemmta sér fram undir morgun.
„Ég gæti alveg trúað að Lewis vilji bara fara að borða og hafa kvöldið rólegt, ég ætla hins vegar að detta í það í kvöld og vera lengi að,“ sagði Anthony Hamilton, faðir heimsmeistarans.

Marco Mattiacci sem fékk hlutverk keppnisstjóra hjá Ferrari, eftir að Stefano Domenicali hætti snemma á tímabilinu, hefur verið vikið úr því starfi.
Arftaki Mattiacci er Maurizio Arrivabene sem hefur lengi unnið með einum helsta styrktaraðila Ferrari til margra ára Marlboro.
Markmiðið með breytingunum er að bæta árangurinn á brautinni. Samkvæmt Sergio Marchionne, forsetia Fiat og Ferrari.
Einhverjar hugmyndir eru um að Ross Brawn sé á leiðinni aftur til Ferrari, það væri spennandi þróun en ólíkleg ennþá. Líklega þarf mikið að gerast til að Brawn fáist til að hætta stangveiði, en hann hefur langt stund á slíkt síðan hann yfirgaf Mercedes liðið.

Nico Rosberg átti fyrir keppnina möguleika á heimsmeistaratitlinum. Hann náði ráspól og allt útlit var fyrir spennandi titilbaráttu. Sú varð ekki raunin, bilun kom upp í rafkerfi í bíl Þjóðverjans.
Möguleikar hans á titlinum urðu að nánast engu, hann vantaði afl sem nemur um 160 hestöflum eða sem nemur rúmlega meðalsprækum fólksbíl.
Hann heimtaði þó að fá að klára keppnina. Honum var sagt að koma inn á þjónustusvæði og stöðva bílinn. Viðbrögðin hans voru virðingarverð. „Ég myndi gjarnan vilja fá leyfi til að klára keppnina,“ sem hann fékk.

„Hver er þetta að aka fyrir Caterham,“ spurði Fernando Alonso eftir að Will Stevens, hafði slórað við að hleypa Spánverjanum fram úr þegar Ferrari ökumaðurinn hringaði nýliðann.
„Þetta er nýji gaurinn,“ var svarið sem Alonso fékk frá keppnisverkfræðing sínum.
Caterham fékk Stevens til að aka bíl sínum eftir að fyrrum ökumaður liðsins, Marcus Ericsson sleit öll tengls við liðið og samdi við Sauber fyrir næsta tímabil.

Nú er eðlilegt að Formúlunördar lands og þjóðar velti fyrir sér hvernig eigi að verja þeim 110 dögum sem eru í næsta kappakstur.
Í fyrsta lagi standa nú yfir prófanir í Abú Dabí, þar er McLaren til að mynda að prófa Hondu vélina sem liðið mun nota á næstu árum. Þar eru einnig ýmsir ungir ökumenn að spreyta sig.
Eftir fyrsta daginn er Valtteri Bottas fljótastur á Williams og býsna ánægður með nýju dekkin frá Pirelli. „Slit dekkjanna er miklu jafnara, Pirelli hefur staðið sig vel við þróun þeirra,“ sagði Bottas eftir daginn.