Aron Einar: Getum gengið stoltir af velli Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Brussel skrifar 12. nóvember 2014 22:30 „
Það er margt jákvætt sem við getum tekið úr þessum leik,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson við Vísi eftir 3-1 tapið gegn Belgum í vináttulandsleiknum í Brussel í gærkvöldi. „Þetta er virkilega sterkt lið sem við vorum að spila við og það er með leikmenn sem geta breytt leikjum. Það er alltaf leiðinlegt að tapa en við getum gengið stoltir af velli. Við gerðum níu breytingar fyrir leikinn en sýndum að við erum komnir með fína breidd,“ sagði Aron Einar. Eins og fyrirliðinn segir gerðu Lars og Heimir miklar breytingar á liðinu og fengu því margir tækifæri til að sanna sig og reyna að koma sér inn í byrjunarliðið sem hefur verið óbreytt í síðustu þremur leikjum. „Þeir sem hafa fengið minna að spila fengu tækifæri í þessum leik. Þeir vildu sýna sig og sanna, en auðvitað er erfitt að breyta liði sem er búið að vinna þrjá leiki í röð. Það voru samt nokkrir sem spiluðu vel í þessum leik,“ sagði Aron Einar, en hefur þetta tap áhrif á sjálfstraustið í liðinu? „Nei. Það er alltaf leiðinlegt að tapa en þetta dregur ekkert úr okkur. Það er ekkert að því að tapa fyrir Belgum á útivelli.“
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Varalið Íslands tapaði fyrir stjörnum prýddu liði Belga Margir leikmenn fá tækifæri til þess að sanna sig í íslenska landsliðinu í kvöld. 12. nóvember 2014 13:05 Níu breytingar á byrjunarliði Íslands Hörður Björgvin Magnússon spilar sinn fyrsta A-landsleik gegn Belgíu í kvöld. 12. nóvember 2014 18:11 Mest lesið Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Enski boltinn Fleiri fréttir Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Sjá meira
Varalið Íslands tapaði fyrir stjörnum prýddu liði Belga Margir leikmenn fá tækifæri til þess að sanna sig í íslenska landsliðinu í kvöld. 12. nóvember 2014 13:05
Níu breytingar á byrjunarliði Íslands Hörður Björgvin Magnússon spilar sinn fyrsta A-landsleik gegn Belgíu í kvöld. 12. nóvember 2014 18:11