Enski boltinn

San Marinó náði í stig

Anton Ingi Leifsson skrifar
Yarmolenko fagnaði vel í kvöld.
Yarmolenko fagnaði vel í kvöld. Vísir/Getty
Andriy Yarmolenko afgreiddi Lúxemborg nánast upp á sitt einsdæmi og San Marinó náði í sitt fyrsta stig í sögu undankeppni Evrópumótsins.

Andriy Yarmolenko skoraði þrennu fyrir Úkraínu sem lagði Lúxemborg af velli. Staðan var 1-0 í hálfleik, en Yarmolenko bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik.

Liechtenstein lagði Moldóva að velli 1-0 með marki frá Franz Burgmeier. Eitt af fáum skiptum sem Liechtenstein vinnur landsleik.

Rubin Okotie tryggði Austuríki sigur gegn Rússlandi með umdeildu marki, en Okotie var afar tæpur að vera rangstæður.

Lúxemborg - Úkranía 0-3

0-1 Andriy Yarmolenko (33.), 0-2 Andriy Yarmolenko (53.), 0-3 Andriy Yarmolenko (56.).

San Marínó - Eistland 0-0

Austuríki - Rússland 1-0

1-0 Rubin Okotie (73.).

Moldovía - Liechtenstein 0-1

0-1 Franz Burgmeier (74.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×