Manchester United leikmenn nota ekki Chevrolet bíla sína Finnur Thorlacius skrifar 4. nóvember 2014 16:14 Daley Blind við Chevrolet Corvette bíl sinn.
Flestir sem fengju Chevrolet Corvette eða Camaro bíla gefins myndu vafalaust aka þeim um allar koppagrundir með bros á vör, en það á ekki allsstaðar við. Leikmenn Manchester United fengu einmitt gefin 15 slíka bíla, en nota þá eiginlega ekkert. Þeir eiga líka miklu dýrari og flottari bíla sem þeir kjósa frekar að nota. Vegna þess ríkir ekkert alltof mikil hamingja í höfuðstöðvum Chevrolet í Bandaríkjunum. Í samningi milli Manchester United knattspyrnuliðsins og Chevrolet, sem helst birtist reyndar í stórri Chevrolet auglýsingu á brjósti Manchester liðsins, er einnig kveðið á um þessa 15 bíla til handa leikmönnum félagsins og í því fólgin mikil auglýsing fyrir Chevrolet, ef þeim væri á annað borð ekið. Það klikkaði þó í samningunum að skilda leikmennina til þess arna, en þeir hafa flestir kosið að aka öðrum bílum sínum og á það til dæmis við Robin van Persie og Wayne Rooney sem frekar kjósa Porsche bíla, Range Rover og Bentley. Í staðinn hefur þessum Chevrolet bílum mest verið ekið af starfsfólki Manchester United félagsins, svo þeir hafa ekki alveg staðið ónotaðir. Gaman hjá þessum starfsmönnum.
Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent