Stjörnumenn duglegir að senda Scholz Snapchat-skilaboð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. október 2014 16:30 Alexander Scholz fagnar hér marki með Stjörnuliðinu sumarið 2012. Vísir/Ernir
Alexander Scholz, fyrrum leikmaður Stjörnunnar, er í 21 árs landsliðshópi Dana sem mætir Íslandi í umspili um sæti í lokaúrslitum EM. Magnús Már Einarsson frá vefsíðunni fótbolti.net er út í Danmörku og hann náði viðtali við Scholz en hann spurði hann meðal annars út í Íslandsmeistaratitil Stjörnunnar. „Ég mjög ánægður fyrir hönd strákanna í Stjörnunni og þetta augljóslega magnað afrek fyrir þá og alla sem eru í kringum félagið. Stjarnan hefur gott orð á sér og það kunna allir að meta Stjörnuna hvert sem þeir fara. Ég er líka mikill aðdáandi og er því mjög ánægður," sagði Alexander Scholz en fylgdist hann með úrslitaleiknum. „Ég sá ekki leikinn því ég var ekki heima. Ég fylgdist með í símanum því ég fékk mikið af Snapchat-skilaboðum frá strákunum í Silfurskeiðinni og þeim sem voru fyrir utan hóp. Ég sá því allt," sagði Alexander Scholz. „Ég var mjög ánægður með að sjá þá fagna sigri og hoppaði líka sjálfur af gleði. Ég fór líka strax í það að finna myndir af þeim með bikarinn þegar ég kom aftur heim," sagði Scholz. „Ég verð samt að viðurkenna að ég var svolítið öfundsjúkur en maður heldur áfram með sitt líf og það eina sem ég get gert er að samgleðjast strákunum. Þetta eru vinir mínir. Þetta er svo stórt afrek þannig að ég get ekki hætt að brosa þegar ég hugsa um þetta," sagði Scholz en það er hægt að sjá viðtalið með því að smella hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Handbolti Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Handbolti Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb Handbolti Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Handbolti Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús Handbolti „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Handbolti „Ekki minn stíll að vera í feluleik með Aron“ Handbolti Sex í röð hjá Napólí Fótbolti Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Fótbolti Fleiri fréttir Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu FIFA setur forsetann í bann fyrir að kalla konu feita Haaland sagður fá yfir tólf milljónir í laun á dag næsta áratuginn Hákon skoraði í endurkomusigri Lille Samingur Haaland slæmar fréttir fyrir Alan Shearer Endrick tileinkaði Rüdiger mörkin sin: Hann hrósar mér aldrei Denis Law látinn Misstu niður tveggja marka forystu og bíða lengur eftir fyrsta sigri ársins Sara Björk skoraði á móti toppliðinu Arnar byrjar á því að fara á Anfield og horfa Hákon spila Hrósar Frey í erlendum miðlum: „Einn hæfileikaríkasti þjálfari Norðurlandanna“ Fer Garnacho frá Manchester United? Chelsea hefur áhuga Solskjær tekinn við Besiktas City búið að finna sinn Salah? Hetja United: „Ein besta vika lífs míns“ Neymar segir að Mbappé hafi verið afbrýðisamur út í Messi Víkingar fá mikinn liðsstyrk Haaland skrifaði undir níu og hálfs árs samning við City Úrslit breyta öllu: „Arnar gerir sér grein fyrir því“ Bitur reynsla Arnars nú skilaboð til leikmanna Íslands: „Í guðanna bænum“ Endrick reddaði Real Madrid í framlengingunni Diallo bjargaði málunum fyrir United á Old Trafford Sjá meira