Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 32-33 | Haukar meistarar meistaranna eftir framlengdan leik Guðmundur Tómas Sigfússon í Vestmannaeyjum skrifar 3. september 2014 15:14 Liðin áttust við í magnaðri úrslitarimmu í vor. mynd/vísir
Haukar sigruðu Eyjamenn í framlengdum leik um titilinn meistari meistaranna. Lokastaðan var 32-33 en leikið var í Vestmannaeyjum. Fyrir leik mátti búast við skemmtilegum sextíu mínútum en liðin háðu frábært einvígi á seinasta tímabili. Í byrjun virtust varnir liðanna ekki ætla að gera neinar rósir en þær voru oft á tíðum galopnar. Eyjamenn tóku forystuna snemma en Haukur Jónsson spilaði leikinn í marki Eyjamanna. Hann fékk ekki margar mínútur á síðustu leiktíð en varði alls nítján skot í dag. Kollegi hans hjá Haukum varði tuttugu skot og þar af þrjú vítaköst. Agnar Smári Jónsson sem stóð sig gríðarlega vel í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn, virtist ætla að gera það sama í kvöld en hann átti góðar upphafsmínútur.Einar Sverrisson, sem átti að fylla skarð Róberts Arons Hostert spilaði gríðarlega vel í varnarleik liðsins en átti erfitt uppdráttar í sókninni. Nokkuð margir leikmenn hjá Eyjamönnum komu ekki við sögu í dag en þeir eiga Evrópuleiki eftir rúma viku. Í hálfleik leiddu Eyjamenn með þremur mörkum eftir frábæran kafla undir lok fyrri háfleiks. Mestur varð munurinn fjögur mörk í upphafi seinni hálfleiks en Haukar minnkuðu það forskot mjög snemma. Um miðbik síðari hálfleiks komust Haukar yfir í fyrsta skiptið en það er frábærum kafla þeirra að þakka. Leikhlé Eyjamanna virtist ætla að gera gæfumuninn en þá komust þeir aftur tveimur mörkum yfir. Á seinustu mínútu leiksins hefðu bæði lið getað stolið sigrinum en mistök einstaklinga urðu þeim að falli. Jafnræði var á með liðunum í framlengingunni en að lokum sigruðu Haukar með sigurmarki frá Heimi Óla Heimissyni sem átti stórleik í Haukaliðinu, þá aðallega í vörninni. Haukar hafa því tekið eina titilinn sem er í boði á tímabilinu en þeir ætla sér fleiri. Gunnar: Vorum klaufar að klára þetta ekki í venjulegum leiktíma„Þetta byrjaði eins og þetta endaði. Þetta endaði með því að við tókum frákastið og unnum titil en það sama gerðist í dag. Samt sem áður ánægður með strákana,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari Eyjamanna, eftir tap í framlengingu. „Við vorum klaufar að klára þetta ekki í venjulegum leiktíma. Morkunas tók dýrmætt víti og færi í lokin sem hefðu getað klárað þetta. Auðvitað er maður hundfúll.“ Eyjamenn vilja meina að þeir hafi verið rændir undir lok framlengingar þegar þeir fengu ekki hornkast. „Ég veit ekki með þetta atvik í lokin, þeir vilja meina að Haukamenn hafi blakað boltanum útaf, maður verður að sjá það á vídeó.“ „Andri er meiddur og Sindri er mjög tæpur. Við eigum þá inni og vonandi koma þeir inn sem fyrst, við erum ekki komnir á þann stað sem við viljum vera,“ bætti Gunnar við en hann er bjartsýnn á framhaldið. Heimir: Verður vonandi svona í vetur„Við vonum að þetta verði svona hjá okkur í vetur, að við vinnum titla og þar fram eftir götunum. Við fengum hörkuleik hérna við ÍBV, sem er frábært lið. Við erum auðvitað án miðjumanns þannig að þetta var ströggl hjá okkur,“ sagði Heimir Óli Heimisson, nýr leikmaður Hauka, eftir fyrsta leik tímabilsins. Heimir átti frábæran leik í kvöld og skoraði meðal annars sigurmark leiksins þegar um það bil þrjár sekúndur voru eftir. „Við erum svoldið seinir í gang, en þegar við förum í gang þá erum við mjög góðir. Þetta snýst um að koma tilbúnir í leikinn, þegar við mætum erum við góðir.“ „Við ætluðum okkur að vera „aggresívir“ eins og kannski alþjóð veit á Vísi,“ bætti Heimir við en hann sagði að liðið ætti það mörg varnarafbrigði að það skipti í raun ekki máli í hvernig vörn liðið byrji. „Við komum sterkari í seinni hálfleikinn og náðum að redda þessu, það er jákvætt,“ sagði Heimir að lokum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Sport Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Íslenski boltinn Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Íslenski boltinn Sjáðu mark Kristins frá miðju og hin sem skiluðu sextíu milljónum í kassann Fótbolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ Enski boltinn Girti niður um liðsfélagann í markafagni Enski boltinn Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Golf Snoop Dogg ráðinn þjálfari fyrir Vetrarólympíuleikana Sport „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar „Þessi hópur getur orðið mjög góður en hann þarf tíma til að læra“ „Æðisleg tilfinning að sjá boltann í markinu“ „Sérstaklega sætt að vinna Færeyjar“ Færeyjar - Ísland 30-33 | Kveðja HM með góðum sigri 13 mörk Andra dugðu skammt gegn frábærum Hauki Sjá meira