Telur goslíkur aukast eftir því sem hrinan dregst á langinn Kristján Már Unnarsson skrifar 21. ágúst 2014 19:45
Líkur á eldgosi aukast eftir því sem atburðarásin í Bárðarbungu dregst á langinn, að mati Magnúsar Tuma Guðmundssonar prófessors. Mat yfirvalda á stöðunni felst enn í tveimur lykilsetningum: Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs. Skjálftahrinan er áfram öflug. Vísindamenn eru ekki sammála um hvernig túlka eigi nokkra sterka skjálfti sem urðu í dag í sjálfri öskju Bárðarbungu. Menn segja ýmist að þeir þýði að þrýstingnum sé að létta af eldstöðinni en einnig er hin skoðunin uppi, að hún sé þvert á móti að aukast. Í Öskju, húsi Jarðvísindastofnunar, hafa vísindamenn verið að bera saman bækur í dag og meta líkur á eldgosi. „Það er alveg möguleiki að þetta endi með eldgosi og þær líkur hafa ekkert minnkað," sagði Magnús Tumi Guðmundsson. „Það má kannski segja að eftir því sem þetta stendur lengur, þá eru kannski meiri líkur á að það gerist eitthvað. En ég held að það séu ekki meiri líkur á gosi heldur en að þetta endi á hinn veginn. Það veit náttúrega enginn," sagði Magnús. Vísindamenn telja sig hafa grófa mynd af því sem hafi verið að gerast undir Vatnajökli síðustu sex daga, að kvika hafi streymt undan öskju Bárðarbungu og síðan tll norðausturs í átt að Dyngjujökli og þar sé hún búin að mynda 25 kílómetra langan berggang á 5 til 10 kílómetra dýpi. Af þrívíddarmynd Veðurstofu af skjálftunum má átta sig á hvar berggangurinn er undir jöklinum. Kristín Vogfjörð, jarðskjálftafræðingur og rannsóknarstjóri Veðurstofu Íslands.Stöð 2/Baldur Hrafnkell.Vísindamenn eru hins vegar ekki á einu máli um hvernig beti að túlka stóra skjálfta sem urðu í öskju Bárðarbungu í nótt og í morgun. Kristín Vogfjörð, rannsóknarstjóri Veðurstofunnar, segir það sitt mat, með samtúlkun við gps-gögn, að þrýstingur sé að minnka í öskjunni og hún að síga.Ingi Bjarnason, jarðskjálfta- og jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.Stöð 2/Baldur Hrafnkell.Ingi Þorleifur Bjarnason, jarðskjálfta- og jarðeðlisfræðingur á Jarðvísindastofnun, túlkar skjálftana þveröfugt: Þrýstingur sé að aukast og fjallið að lyftast, meiri kvika sé að berast inn í eldstöðvakerfið. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld lýsti Magnús Tumi líklegri atburðarás, ef eldgos kæmi upp.
Bárðarbunga Tengdar fréttir Verður fimm stiga skjálfti rásmerki Bárðarbungu? Kröftugur jarðskjálfti í Bárðarbungu um 5 á Richter var það sem hleypti af Gjálpargosinu í Vatnajökli árð 1996. 17. ágúst 2014 12:30 Skjálftinn var 4,5 stig Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa endurmetið stærð stóra skjálftans sem varð í Bárðarbungu í nótt. 18. ágúst 2014 21:45 Viðvörunarstig vegna flugs hækkað í appelsínugult Áframhaldandi virkni mælist í Bárðarbungu. Ekki verður dregið úr viðbúnaði almannavarna að svo stöddu. 18. ágúst 2014 12:50 Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu. 19. ágúst 2014 13:36 Skjálfti upp á 4,0 stig Tveir nokkuð stórir jarðskjálftar urðu nærri Bárðarbungu fyrir hádegi í dag. 21. ágúst 2014 13:39 Víðtækar lokanir á hálendinu Vísindaráð almannavarna telur að að kvika sé á hreyfingu austan við Bárðarbungu við jökuljaðar Dyngjujökuls. 18. ágúst 2014 20:06 Mjög öflugur atburður, kvikan færi hratt upp Atburðarásin í Bárðarbungu nú er margfalt öflugri en sú sem varð í aðdraganda Gjálpargossins árið 1996. 20. ágúst 2014 11:51 Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina. 19. ágúst 2014 20:00 Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30 Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli. 20. ágúst 2014 19:15 „Eitt öflugasta og hættulegasta eldfjall Íslands“ Aukinn viðbúnaður er á Veðurstofunni vegna mikillar skjálftavirkni í Bárðarbungu í dag. Athuganir gefa til kynna að um kvikuhreyfingar séu að ræða. 16. ágúst 2014 16:28 Þrívíddarkort af skjálftavirkni í Bárðarbungu Veðurstofa Íslands hefur unnið myndband sem sýnir skjálftavirknina í Bárðarbungu á tímabilinu 16.-20. ágúst. 20. ágúst 2014 17:26 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð til vegna gruns um að maður hafi fallið í Ölfusá „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sjá meira
Verður fimm stiga skjálfti rásmerki Bárðarbungu? Kröftugur jarðskjálfti í Bárðarbungu um 5 á Richter var það sem hleypti af Gjálpargosinu í Vatnajökli árð 1996. 17. ágúst 2014 12:30
Skjálftinn var 4,5 stig Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa endurmetið stærð stóra skjálftans sem varð í Bárðarbungu í nótt. 18. ágúst 2014 21:45
Viðvörunarstig vegna flugs hækkað í appelsínugult Áframhaldandi virkni mælist í Bárðarbungu. Ekki verður dregið úr viðbúnaði almannavarna að svo stöddu. 18. ágúst 2014 12:50
Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu. 19. ágúst 2014 13:36
Skjálfti upp á 4,0 stig Tveir nokkuð stórir jarðskjálftar urðu nærri Bárðarbungu fyrir hádegi í dag. 21. ágúst 2014 13:39
Víðtækar lokanir á hálendinu Vísindaráð almannavarna telur að að kvika sé á hreyfingu austan við Bárðarbungu við jökuljaðar Dyngjujökuls. 18. ágúst 2014 20:06
Mjög öflugur atburður, kvikan færi hratt upp Atburðarásin í Bárðarbungu nú er margfalt öflugri en sú sem varð í aðdraganda Gjálpargossins árið 1996. 20. ágúst 2014 11:51
Kvika talin streyma inn í eldstöðina af miklu afli Almannavarnir lýstu í kvöld yfir hættustigi norðan Dyngjujökuls og hafa ákveðið að hálendið þar verði rýmt. Mikið magn kviku er talið streyma upp í Bárðarbungueldstöðina. 19. ágúst 2014 20:00
Aðgerðir koma illa við ferðaþjónustuna Hræringarnar undir Bárðarbungu þegar haft mikil áhrif á samfélagið, meðal annars á ferðaþjónustu. Rauði krossinn er búinn undir hamfarir eins og aðrir viðbragðsaðilar. 20. ágúst 2014 18:30
Hratt kvikuflæðið á við hálfa Þjórsá Hraunelfan sem streymir úr iðrum Bárðarbungu er að umfangi álíka og flæði hálfrar Þjórsár og hefur þegar myndað 25 kílómetra langan berggang undir Vatnajökli. 20. ágúst 2014 19:15
„Eitt öflugasta og hættulegasta eldfjall Íslands“ Aukinn viðbúnaður er á Veðurstofunni vegna mikillar skjálftavirkni í Bárðarbungu í dag. Athuganir gefa til kynna að um kvikuhreyfingar séu að ræða. 16. ágúst 2014 16:28
Þrívíddarkort af skjálftavirkni í Bárðarbungu Veðurstofa Íslands hefur unnið myndband sem sýnir skjálftavirknina í Bárðarbungu á tímabilinu 16.-20. ágúst. 20. ágúst 2014 17:26