Gjálpargosið þurfti nærri tvo daga til að bræða jökulinn Kristján Már Unnarsson skrifar 23. ágúst 2014 17:45
Gjálpargosið í Vatnajökli árið 1996 er síðasta eldgosið sem rakið er til Bárðarbungu. Talið er að þykkt jökulsins þar sem gosið kom upp hafi verið á milli 450 til 600 metrar en fyrstu sjáanlegu ummerkin á jöklinum voru tveir sigkatlar.Fjallað var um málið í aukafréttatíma Stöðvar 2 í dag sem sjá má í heild sinni hér að ofan. Umbrotin þá eru talin hafa byrjað með öflugum jarðskálfta að stærðinni fimm laust fyrir hádegi þann 29. september og skjálftahrinan hélt síðan stöðugt áfram. Það var svo að kvöldi 30. september að skjálftahrinan breyttist í gosóróa en það var ekki fyrr en að morgni 1. október sem gosstaðurinn var staðfestur þegar sigkatlarnir sáust.Tveir sigkatlar voru fyrstu merkin sem sáust á yfirborði Vatnajökuls í gosinu fyrir 18 árum.Mynd/Stöð 2.Gosið var mjög öflugt en áætlað er að gossprungan sem opnaðist hafi verið þriggja til fjögurra kílómetra löng. Þrátt fyrir það leið meira en einn og hálfur sólarhringur frá því gosið hófst þangað til það náði upp úr jöklinum en það gerðist snemma morguns þann 2. október. Þá fyrst sást gosmökkur og jafnframt hófst öskufall sem að mestu féll til norðurs á jökulinn. Lítil aska féll hins vegar utan jökulsins. Gjálpargosið er talið með stærri gosum á 20. öld á Íslandi og myndaðist mikil ísgjá í jöklinum. Vatnið sem gosið bræddi flæddi hins vegar ekki strax frá jöklinum heldur safnaðist fyrir í Grímsvötnum. Í fyrstu var búist við að flóðbylgjan myndi bresta á innan fárra daga yfir Skeiðarársand en reyndin varð sú að menn þurftu að bíða í fimm vikur. Það var loks þann 5. nóvember sem hamfarahlaup kom undan Skeiðarárjökli og sópaði burt brúnni yfir Gígjukvísl í heilu lagi og tók brúna yfir Skeiðará í sundur á kafla. Eldgosinu sjálfu lauk hins vegar 14. október og stóð því í hálfan mánuð. Í spilaranum efst í fréttinni má sjá umfjöllun um Gjálpargosið úr aukafréttatíma Stöðvar 2 klukkan 17 í dag. Hægt er að sjá fréttatímann í heild sinni á sjónvarpssíðu Vísis.Brúin yfir Skeiðará skemmdist mikið og brúin yfir Gígjukvísl sópaðist burt í hlaupinu 1996. Fréttablaðið/ÞÖK
Bárðarbunga Tengdar fréttir Ómar fylgist með jöklinum „Ég er búinn að vera hérna að horfa á jökulinn síðan í hádeginu,“ segir Ómar Ragnarsson. 23. ágúst 2014 15:42 Stórt svæði lokað Stórt svæði yfir suðaustanverðu landinu er lokað fyrir flugumferð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu og Samhæfingamiðstöðinni. Ákvörðun um þessa lokun er endurmetin á tveggja klukkutíma fresti. 23. ágúst 2014 16:51 Vegir verða rofnir komi til flóðs Vegir við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum verða rofnir komi til flóðs. Tæki eru til staðar í Öxarfirði og tæki eru á leiðinni að brúnni við Grímsstaði. 23. ágúst 2014 16:16 Alþjóðaflugið enn opið Ekki hefur verið lokað fyrir flug til og frá landinu. Talið er að lítið gos sé hafið undir Dyngjujökli að því er kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. 23. ágúst 2014 15:04 Aukafréttatími Stöðvar 2 klukkan fimm Nýjustu fregnir af eldgosinu. Hægt er að horfa á fréttatímann hér í fréttinni. 23. ágúst 2014 15:54 Landsnet í viðbragðsstöðu vegna Dyngjujökuls Kröflulína 2 og Kópaskerslína 1 kunna að vera í hættu. 23. ágúst 2014 16:52 Sigmundur Davíð: Traustvekjandi að sjá fagmennskuna Forsætisráðherra hrósar Almannavörnum. „Ekki skemmdi fyrir að sjá að fólkið var að borða Hraun og drekka gos.“ 23. ágúst 2014 17:30 Fólk í grennd við gosstöðvarnar hvatt til að fylgjast vel með fréttum Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu í ljósi þess að gos er hafið undir sporði Dyngjujökuls. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að að svo stöddu sé ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit. 23. ágúst 2014 14:58 Íhuga að hækka viðvörunarstig vegna flugs í rautt Veðurstofan kannar nú þann möguleika hvort þurfi að hækka viðvörunarstig vegna flugs og banna flug á stóru svæði 23. ágúst 2014 13:18 Hraungos hafið undir Dyngjujökli Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt. 23. ágúst 2014 14:17 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð til vegna gruns um að maður hafi fallið í Ölfusá „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sjá meira
Ómar fylgist með jöklinum „Ég er búinn að vera hérna að horfa á jökulinn síðan í hádeginu,“ segir Ómar Ragnarsson. 23. ágúst 2014 15:42
Stórt svæði lokað Stórt svæði yfir suðaustanverðu landinu er lokað fyrir flugumferð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu og Samhæfingamiðstöðinni. Ákvörðun um þessa lokun er endurmetin á tveggja klukkutíma fresti. 23. ágúst 2014 16:51
Vegir verða rofnir komi til flóðs Vegir við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum verða rofnir komi til flóðs. Tæki eru til staðar í Öxarfirði og tæki eru á leiðinni að brúnni við Grímsstaði. 23. ágúst 2014 16:16
Alþjóðaflugið enn opið Ekki hefur verið lokað fyrir flug til og frá landinu. Talið er að lítið gos sé hafið undir Dyngjujökli að því er kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. 23. ágúst 2014 15:04
Aukafréttatími Stöðvar 2 klukkan fimm Nýjustu fregnir af eldgosinu. Hægt er að horfa á fréttatímann hér í fréttinni. 23. ágúst 2014 15:54
Landsnet í viðbragðsstöðu vegna Dyngjujökuls Kröflulína 2 og Kópaskerslína 1 kunna að vera í hættu. 23. ágúst 2014 16:52
Sigmundur Davíð: Traustvekjandi að sjá fagmennskuna Forsætisráðherra hrósar Almannavörnum. „Ekki skemmdi fyrir að sjá að fólkið var að borða Hraun og drekka gos.“ 23. ágúst 2014 17:30
Fólk í grennd við gosstöðvarnar hvatt til að fylgjast vel með fréttum Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu í ljósi þess að gos er hafið undir sporði Dyngjujökuls. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að að svo stöddu sé ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit. 23. ágúst 2014 14:58
Íhuga að hækka viðvörunarstig vegna flugs í rautt Veðurstofan kannar nú þann möguleika hvort þurfi að hækka viðvörunarstig vegna flugs og banna flug á stóru svæði 23. ágúst 2014 13:18
Hraungos hafið undir Dyngjujökli Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt. 23. ágúst 2014 14:17