Fótbolti

Nordsjælland vann meistarana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ólafur gat leyft sér að fagna eftir leik dagsins.
Ólafur gat leyft sér að fagna eftir leik dagsins.
Ólafur Kristjánsson og lærisveinar hans í Nordsjælland unnu magnaðan sigur á AaB á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Nicklas Helenius kom ríkjandi meisturum í AaB yfir, en Joshua John jafnaði metinn fyrir Nordsjælland. Það var svo varamaðurinn Kristian Lindberg sem skoraði sigurmarkið rúmum tíu mínútum fyrir leikslok.

Ólafur hefur byrjað afar vel með Nordsjælland en liðið er í fyrsta sæti deildarinnar með níu stig eftir fjóra leiki. AaB er hins vegar í sjötta sæti deildarinnar með fimm stig, en þeir standa í ströngu í Evrópu þessa daganna þar sem liðið er komið í umspil um laust sæti í Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×