Fresta olíuhöfn í Norður-Noregi Kristján Már Unnarsson skrifar 30. júní 2014 11:30 Svona á olíuhöfnin í Veidnes í Norður-Noregi að líta út. Hún gæti orðið fyrirmynd hafnar við Finnafjörð við Langanes. Teikning/Statoil.
Lagning neðansjávarleiðslu frá nýfundnum olíulindum í Barentshafi til lands í Norður-Noregi , ásamt byggingu nýrrar olíuhafnar við Honningsvåg, er of dýr. Þetta segir Statoil í tilkynningu í dag þar sem fram kemur að norska olíufélagið hafi ásamt samstarfsfélögum sínum, ENI og Petoro, ákveðið að fresta um eitt ár ákvörðun um hvaða tæknilegu lausnir verði valdar til að vinna olíu af Johan Castberg-svæðinu. Fyrir Íslendinga er áhugavert að fylgjast með þróun þessa máls því ef olía finnst á annað borð á íslenska Drekasvæðinu er líklegt að samskonar umræða geti komið upp á Íslandi. Fjarlægðin frá Drekasvæðinu til Langaness er nefnilega svipuð og frá olíusvæðinu í Barentshafi til nyrstu byggða Noregs.Neðansjávarleiðslan frá Skrugård til Veidnes er áætluð 280 kílómetra löng.Johan Castberg-svæðið samanstendur af tveimur olíulindum, Skrugård, sem fannst árið 2011, og Havis, sem fannst árið 2012. Áætlað er að lindirnar geymi 400-600 milljónir tunna af olíu. Statoil hafði áætlað að hafa fljótandi vinnslupall á svæðinu og dæla olíunni þaðan um 280 kílómetra langa leiðslu sem lægi á hafsbotninum til lands í Norður-Noregi. Byggja átti sérstaka olíuhöfn við Veidnes utan við bæinn Honningsvåg og átti hún að vera tilbúin árið 2018. Sveitarstjórnarmenn undir forystu oddvitans í Nordkapp, Færeyingsins Kristinu Hansen, glöddust yfir staðarvalinu í fyrra. Þeir sáu fram á 500-600 störf á byggingartíma og 40-60 ný föst störf í sveitarfélaginu við olíuhöfnina.Kristina Hansen frá Færeyjum, bæjarstjóri Nordkapp, fagnaði með aðstoðarforstjóra Statoil, Oystein Michelsen, þegar valið á Veidnes var kynnt í fyrra.Mynd/Statoil.Statoil hefur síðan borað fimm aðrar holur í kringum olíulindirnir í von um að finna meira en þær hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Segist félagið nú ætla að skoða aðra lausn á vinnslu olíunnar; að staðsetja fljótandi vinnsluskip á svæðinu sem myndi dæla olíunni beint í olíuskip. Það þýddi að leiðsla til lands yrði óþörf. Statoil hefur þó ekki slegið af áform um Veidnes-höfn og neðansjávarleiðslu en tekur fram að óvissa ríki um stuðning hins opinbera við uppbyggingu slíkra innviða. Norsk stjórnvöld, þar á meðal Olíustofnun Noregs, ásamt hagsmunaaðilum í Norður-Noregi, þrýsta á Statoil að velja lausn með olíuhöfn og leiðslu til lands. Félagið hefur hins vegar notað málið til að þrýsta á nýju hægri stjórnina að endurskoða skattabreytingar fyrri ríkisstjórnar, sem dró úr skattendurgreiðslum olíufélaga vegna fjárfestinga af þessu tagi.
Tengdar fréttir Statoil: Nýr stór olíufundur í Barentshafi Norska olíufélagið Statoil hefur tilkynnt um stórann nýjan olíufund í Barentshafi. 9. janúar 2012 08:28 Veidneshöfn gæti orðið fyrirmynd Gunnólfsvíkur Tillaga Statoil að nýrri olíuhöfn í Norður-Noregi er athyglisverð fyrir Íslendinga. Sambærileg lausn í Gunnólfsvík í Finnafirði gæti orðið meðal þeirra sem kæmu til umræðu á Íslandi, finnist olía í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu. 23. febrúar 2014 11:15 Mest lesið Halla og Linda Dröfn á lista Harvard um merkilegar konur Viðskipti innlent Varað við svörtum eldhúsáhöldum Neytendur Segja upp 52 sjómönnum Viðskipti innlent Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Atvinnulíf Baðlón og nýr veitingastaður Gísla Matt í Laugarási Viðskipti innlent Segir skilið við Grillmarkaðinn Viðskipti innlent Milljarðar Menntasjóðsins skrítnir þegar stúdentar sligist undan vöxtum Neytendur Himinháar kröfur í galtóm bú veitingamanna á Akureyri Viðskipti innlent Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Atvinnulíf Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Atvinnulíf Fleiri fréttir Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Setur háa tolla á Evrópu Ása Steinars vann sigur gegn bandarísku markaðsfyrirtæki Erlend gagnaver sögð skila litlu í þjóðarbúið Bobbingastaður í bobba Ofurstinn flytur til Texas Hóta því að kæra forsetann fyrir embættisglöp vegna rafmyntabrasks Rafmyntarforstjóri játar sig sekan um að féfletta viðskiptavini Musk og félagar gerðu 97,4 milljarða dala tilboð í OpenAI Beina spjótum sínum að bandarískum tæknifyrirtækjum Allar auglýsingar Super Bowl á sama stað Sagðir ætla að hafna samruna við Honda Tollastríð hafið: „Ekki gott fyrir Ísland og lífskjör Íslendinga“ Sjá meira
Statoil: Nýr stór olíufundur í Barentshafi Norska olíufélagið Statoil hefur tilkynnt um stórann nýjan olíufund í Barentshafi. 9. janúar 2012 08:28
Veidneshöfn gæti orðið fyrirmynd Gunnólfsvíkur Tillaga Statoil að nýrri olíuhöfn í Norður-Noregi er athyglisverð fyrir Íslendinga. Sambærileg lausn í Gunnólfsvík í Finnafirði gæti orðið meðal þeirra sem kæmu til umræðu á Íslandi, finnist olía í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu. 23. febrúar 2014 11:15