Fótbolti

Víkingur Ólafsvík á toppinn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Víkingur þurfti að hafa fyrir sigrinum gegn botnliðinu
Víkingur þurfti að hafa fyrir sigrinum gegn botnliðinu vísir/anton
Víkingur frá Ólafsvík lagði botnlið Tindastóls 1-0 á heimavelli sínum í 1. deild karla í fótbolta í dag.

Antonio Mossi skoraði eina mark leiksins á 75. mínútu og dugði það Ólsurum til komast upp fyrir Leikni Reykjavík í bili að minnsta kosti því Leiknir á leik til góða.

Víkingur er með 15 stig eftir sjö leiki en Leiknir 14 stig úr sex leikjum.

Tindastóll er á botninum með 2 stig úr sjö leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×