Íslenski boltinn

Titilvörnin hefst gegn Hetti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fanndís Friðriksdóttir er komin aftur í Breiðablik.
Fanndís Friðriksdóttir er komin aftur í Breiðablik. Vísir/Valli
Dregið var í 16-liða úrslit Borgunarbikarkeppni kvenna í hádeginu. Bikarmeistarar Breiðabliks fá Hött frá Egilsstöðum í heimsókn.

Liðin tíu úr Pepsi-deild kvenna koma beint inn í 16-liða úrslitin og verða þrjár innbyrðisviðureignir þeirra liða.

Afturelding tekur á móti Val, Þór/KA mætir Fylki og þá eigast Selfoss og ÍA við.

Leikirnir fara fram dagana 6. og 7. júní. Lokaleikur 2. umferðar fer fram í kvöld er Þróttur tekur á móti BÍ/Bolungarvík í Laugardalnum klukkan 18.00.

16-liða úrslitin:

KR - FH

Breiðablik - Höttur

Þróttur eða BÍ/Bolungarvík - ÍR

Selfoss - ÍA

Afturelding - Valur

Álftanes - ÍBV

Þór/KA - Fylkir

Víkingur Ólafsvík - Stjarnan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×