Minnisblaðið vistað á opnu drifi innanríkisráðuneytisins

Auk skrifstofustjórans og lögfræðingsins sem tók minnisblaðið saman lásu tveir aðrir lögfræðingar minnisblaðið yfir. Í skýrslum sem lögreglan hefur tekið af þessum starfsmönnum ráðuneytisins hefur ekkert komið fram um að aðrir en þeir sem að framan greinir hafi búið yfir vitneskju um minnisblaðið. Jafnframt bendir rannsókn lögreglunnar til þess að hverfandi líkur séu á því að minnisblaðið hafi verið sent frá ráðuneytinu í tölvupóstkerfi þess.
Fréttastjóra ekki gert að svara spurningum
Þá staðfesti Hæstiréttur úrskurð héraðsdóms í dag, sem hafði hafnað kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, um að fréttastjóra mbl.is yrði gert að svara spurningum um frétt sem birtist á vefmiðlinum mbl.is hinn 20. nóvember síðastliðinn. Lögregla vildi vita með hvaða hætti mbl.is hefði komist yfir minnisblaðið og frá hverjum það barst.
Fram kemur í úrskurði Hæstaréttar að ekki hafi verið leitað allra þeirra leiða sem færar eru til þess að upplýsa málið áður en farið var fram á að varnaraðili svaraði spurningum lögreglu. „Þegar af þeirri ástæðu verður að telja að sóknaraðili hafi ekki fært fyrir því viðhlítandi rök að nauðsyn beri til þess að grípa til þess úrræðis sem fram kemur í 3. mgr. 119. gr. laga nr. 88/2008. Kemur þá ekki frekari skoðunar hvort vegi þyngra að upplýsa brotið eða að trúnaður haldi,“ segir í úrskurðinum.
Markmiðið að sverta mannorð hælisleitanda
Þá segir að við þetta hagsmunamat hafi sérstaka þýðingu að upplýsingarnar, sem bárust með ólögmætum hætti frá innanríkisráðuneytinu, hafi ekki átt erindi til almennings. Þær hafi ekki haft þýðingu sem innlegg í almenna umræðu um málefni flóttamanna í landinu. Markmiðið með lekanum virðist fremur hafa verið að sverta mannorð eins brotaþola vegna yfirvofandi mótmæla við ráðuneytið vegna afgreiðslu þess á máli hans.
Tengdar fréttir

Mótmæli við innanríkisráðuneytið vegna hælisleitenda
Krefjast mannréttinda fyrir hælisleitendurna frá Nígeríu.

Reynir segist hafa fengið „ógeðfelld símtöl“ frá Hönnu Birnu
Reynir Traustason ritstjóri segir innanríkisráherra hafa reynt að hafa áhrif á fréttaflutning með ósæmilegum hætti.

Hvatt til óháðrar rannsóknar á lekamálinu
Innanríkisráðherra segir ítarlega rannsókn innan innanríkisráðuneytisins og stofnana þess sýna að minnisblað um hælisleitanda hafi ekki komið úr ráðuneytinu. Mörður Árnason er með minnisblaðið.

Veit ekki hver lak minnisblaðinu
Farið var yfir víðan völl í viðtalinu við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, í þættinum Mín skoðun í dag en meðal annars var fjallað um leka minnisblaðs úr innanríkisráðuneytinu sem vakið hefur undrun margra.

Leki sem snertir tugþúsundir einstaklinga
Gengi hlutabréfa Vodafone hríðféll í Kauphöllinni í dag og hafa fjölmargir viðskiptavinir sagt skilið við fyrirtækið. Eitt af fórnarlömbum lekans mikla um helgina ítrekar að prívat gögn séu prívat, þó að þeim sé stolið. Innanríkisráðherra fordæmir tölvuárásina.

Máli Tony Omos enn frestað
Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar.

Hanna Birna telur „lekamálið“ snúast um annað en hælisleitendur
Hanna Birna Kristjánsdóttir var hvöss í ræðupúlti alþingis í umræðu um hælisleitendur og telur sig sitja ómaklega undir ásökunum.

Tony Omos stefnir íslenska ríkinu
Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun.

Krefja Hönnu Birnu um svör varðandi lekamálið
Alþingismennirnir Mörður Árnason og Valgerður Bjarnadóttir hafa sent Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, formlega fyrirspurn varðandi lekamálið.

Mótmæli vegna lekamálsins
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan innanríkisráðuneytið í hádeginu á morgun.

Innanríkisráðuneytið vill enn nánari skoðun vegna lekamálsins
Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því að öll tölvutæk gögn í lekamálinu verði rannsökuð með aðkomu Persónuverndar og sérstöku samþykki starfsmanna.

Ríkissaksóknari vill svör frá innanríkisráðuneytinu
Ríkissaksóknari hefur óskað eftir upplýsingum úr innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns Tony Omos sem sakar innanríkisráðuneytið um að hafa dreift gögnum um sig.

Píratar vilja Hönnu Birnu fyrir þingnefnd vegna leka
Jón Þór Ólafsson þingmaður Píratar óskar eftir því að að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.