Íslenski boltinn

Markaregn í Borgunarbikarnum | Óvæntur sigur KFS

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tryggvi er strax byrjaður að skora fyrir KFS.
Tryggvi er strax byrjaður að skora fyrir KFS. Vísir/GVA
Fyrsta umferð Borgunarbikars karla hófst í gær með leik Leiknis F og Hattar, þar sem Leiknismenn höfðu betur með fjórum mörkum gegn tveimur. Í dag fóru svo fram 18 leikir í Borgunarbikarnum.

Tryggvi Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir 4. deildarlið KFS þegar liðið vann Gróttu á Helgafellsvelli í dag. Gróttumenn, sem leika í 2. deild, komust yfir með marki PétursMás Harðarsonar og leiddu í hálfleik 1-0. Í seinni hálfleik snerist dæmið hins vegar og við og KFS tryggði sér 3-1 sigur með mörkum frá Guðjóni Ólafssyni, Gauta Þorvarðarsyni og Tryggva, sem gekk í raðir KFS á dögunum.

Atli Eðvaldsson og lærisveinar hans í Aftureldingu unnu 2-1 útisigur á Mídasi.

Fjarðabyggð sigraði Einherja á Norðfjarðarvelli með fimm mörkum gegn einu. Andri Jónasson skoraði þrennu fyrir Fjarðabyggð.

Njarðvík bar 3-1 sigurorð af KB á Njarðtaksvellinum. Pawel Grudzinski, Einar Þór Kjartansson og Aron Freyr Róbertsson skoruðu mörk heimamanna, en Garðar Geirsson skoraði mark Breiðhyltinga.

Aðalsteinn Jóhann Friðriksson skoraði þrennu þegar Völsungur valtaði yfir Nökkva, 11-0, á Húsavík.

Skínandi úr Garðabæ vann einnig 11-0 sigur í dag, á liði Afríku á Samsung vellinum. Ágúst Leó Björnsson skoraði sjö af mörkum Skínanda.

Þá vann Hamar lið Snæfells á Grýluvelli með sex mörkum gegn einu. Samúel Arnar Kjartansson skoraði þrennu fyrir Hvergerðinga.

Fjórir leikir fara fram á morgun.

Öll úrslit dagsins í Borgunarbikarnum:

KFS 3-1 Grótta

Augnablik 7-1 Léttir

Njarðvík 3-1 KB

Kría 1-3 Vængir Júpíters

Elliði 2-1 Örninn

Fjarðabyggð 5-1 Einherji

Völsungur 11-0 Nökkvi

KH 6-3 Kóngarnir

KFR 2-0 Álftanes

Árborg 1-1 Víðir (Víðir áfram eftir vítaspyrnukeppni)

Mídas 1-2 Afturelding

Hamar 6-1 Snæfell

Skínandi 11-0 Afríka

Magni 9-1 Hamrarnir

Stokkseyri 0-1 Ármann

Grundarfjörður 5-1 Vatnarliljurnar

ÍH 3-1 Ísbjörninn

KFG 4-0 Gnúpverjar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×