Martin og Hildur valin best - frábært kvöld fyrir KR og Snæfell Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2014 22:44 Martin Hermannson úr KR og Hildur Sigurðardóttir úr Snæfelli.
Martin Hermannson úr KR og Hildur Sigurðardóttir úr Snæfelli voru í kvöld valin bestu leikmenn Domnios-deilda karla og kvenna í körfubolta á þessu tímabili en þau fengu verðlaun sín á lokahófi KKÍ. Martin var einnig valinn besti ungi leikmaður Dominos-deildar karla en Marín Laufey Davíðsdóttir hjá Hamar þótti besti ungi leikmaður Dominos-deildar kvenna. Þetta var annars frábært kvöld fyrir karlalið KR og kvennalið Snæfells sem sópuðu að sér verðlaunum á lokahófinu en bæði liðin tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. KR fékk öll verðlaunin í karlaflokki því Finnur Freyr Stefánsson var valinn besti þjálfarinn og Darri Hilmarsson var kosinn besti varnarmaðurinn auk þess að vera valinn prúðasti leikmaðurinn. KR átti einnig þrjá af fimm leikmönnum í úrvalsliði karla. Nánast sömu sögu er að segja af kvennaliði Snæfells því Ingi Þór Steinþórsson var valinn besti þjálfarinn og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir þótti besti varnarmaðurinn í kvennadeildinni. Auður Ólafsdóttir úr Haukum var valin prúðasti leikmaðurinn. Líkt og hjá karlaliði KR þá átti kvennalið Snæfells þrjá af fimm leikmönnum úrvalsliðs kvenna. Michael Craion hjá Keflavík var kosinn besti erlendi leikmaður Dominos-deildar karla en Lele Hardy hjá Haukaum þótti besti erlendi leikmaðurinn í kvennadeildinni. Hardy var að fá þessi verðlaun þriðja árið í röð. Rögnvaldur Hreiðarsson var kosinn besti dómarinn í Dominos-deildum karla og kvenna 2013-14 en þetta er í fyrsta sinn sem hann fær þessi verðlaun.Verðlaun á lokahófi KKÍ 2014:Besti leikmaður Domino´s deild kvenna 2013-14 Hildur Sigurðardóttir SnæfellBesti þjálfari Domino´s deild kvenna 2013-14 Ingi Þór Steinþórsson SnæfellBesti ungi leikmaður Domino´s deild kvenna 2013-14 Marín Laufey Davíðsdóttir HamarÚrvalslið 2013-14 Domino´s deild kvenna Hildur Sigurðardóttir Snæfell Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir Snæfell Hildur Björg Kjartansdóttir Snæfell Sigrún Sjöfn Ámundadóttir KR Bryndís Guðmundsdóttir KeflavíkBesti varnarmaður Domino´s deild kvenna 2013-14 Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir SnæfellBesti erlendi leikmaður Domino´s deild kvenna 2013-14 Lele Hardy HaukarPrúðasti leikmaður Domino´s deild kvenna 2013-14 Auður Íris ÓlafsdóttirBesti leikmaður Domino´s deild karla 2013-14 Martin Hermannsson KRBesti þjálfari Domino´s deild karla 2013-14 Finnur Freyr Stefánsson KRBesti ungi leikmaður Domino´s deild karla 2013-14 Martin Hermannsson KRÚrvalslið 2013-14 Domino´s deild karla Elvar Már Friðriksson Njarðvík Martin Hermannsson KR Pavel Ermolinskij KR Helgi Már Magnússon KR Ragnar Nathanaelsson Þór ÞorlákshöfnBesti varnarmaður Domino´s deild karla 2013-14 Darri Hilmarsson KRBesti erlendi leikmaður Domino´s deild karla 2013-14 Michael Craion KeflavíkPrúðasti leikmaður Domino´s deild karla 2013-14 Darri Hilmarsson KRBesti dómarinn Domino´s deildum karla og kvenna 2013-14 Rögnvaldur Hreiðarsson
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira