Sigurður tekur aftur við kvennaliði Keflavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2014 21:29 Sigurður Ingimundarson. Vísir/Valli
Sigurður Ingimundarson mun þjálfa kvennalið Keflavíkur í Dominos-deildinni í körfubolta næsta vetur en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning um að þjálfa tvo elstu kvennaflokkana. Sigurður þjálfaði kvennalið Keflavíkur síðast veturinn 2012-13 en Keflavík vann þá tvöfalt. Sigurður fékk ekki að halda áfram með liðið en Andy Johnson stýrði báðum meistaraflokkunum í vetur eins og frægt er orðið. Sigurður þekkir vel til hjá Keflavík enda hefur hann komið að mörgum Íslandsmeistaratitlum félagsins í bæði karla og kvennaflokki. Sigurður hefur gert kvennalið Keflavíkur fimm sinnum að Íslandsmeisturum auk þess að stýra liðinu í oddaleiknum um titilinn árið 2000 þar sem Keflavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. „Sigurður þjálfaði kvennalið félagsins síðast tímabilið 2012-2013 en þá vann liðið alla titla sem í boði voru. Líkt og ávallt eru miklar vonir bundnar við kvennalið Keflavíkur og telur stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur að með ráðningu Sigurðar sé kominn rétti aðilinn til að stýra hinu gríðarlega unga liði upp á næsta þrep. Þegar hafa samningar náðst við flesta þá leikmenn sem spiluðu með liðinu á nýliðnu tímabili auk þess sem búast má við að nokkrar ungar og upprennandi stjörnu félagsins láti meira til sín taka á næsta tímabili en af nógu er víst að taka í ótæmandi brunni kvennastarfs félagsins. Þá hefur liðsstyrkur verið sóttur í Hveragerði með því að klófesta eina sterkustu frákastadrottningu Domino´s deildarinnar, Marínu Laufey Davíðsdóttur," segir í frétt um ráðninguna á heimasíðu Keflavíkur.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira