Lewis Hamilton vann í Bahrain Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 6. apríl 2014 17:09 Hamilton fagnar eftir spennandi kappakstur. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes bar sigur úr býtum í Formúlu 1 mótinu sem fór fram í Barein í dag eftir harða samkeppni við liðsfélaga sinn, Nico Rosberg. Sergio Perez á Force India þriðji. Keppnin var skemmtileg og spennandi til loka. Öryggisbíll sem kom út undir lokin þétti hópinn síðustu tíu hringina. Hann gerði það einnig að verkum að ökumenn þurftu ekki að spara eldsneyti á lokahringjunum. „Ég nýt þess ekki að vera annar á eftir Lewis, en þetta var mest spenanndi keppni sem ég hef tekið þátt í á ferlinum. Ég mun koma aftur og vinna í Kína,“ sagði Rosberg á verðlaunapallinum. „Þetta er aðeins mín þriðja keppni með liðinu og að komast á pall er mjög sérstakt fyrir mig,“ sagði Perez sem hafði betur í baráttunni við Daniel Ricciardo um þriðja sætið.Massa á milli Mercedes bílanna í ræsingunni.Vísir/GettyAdrian Sutil var færður aftur um 5 sæti á ráslínu fyrir að trufla Romain Grosjean í timatökunni og ræsti því aftastur.Sebastian Vettel og Adrian Sutil tóku aðra stefnu hvað varðaði dekkjaval en aðrir. Þeir hófu keppni á harðari dekkjagerðinni sem er hægari gerðin. Líklega voru þeir að vonast eftir öryggisbíl snemma í keppninni. Öryggisbíllinn hafði þó einungis komið einu sinni við sögu í níu keppnum í Bahrain fyrir þessa. Hamilton náði forystunni í fyrstu beygju. Það sprakk dekk á fyrsta hring hjá Jean-Eric Vergne, Pastor Maldonado keyrði á hann. Maldonado var rétt að byrja.Felipe Massa átti bestu ræsinguna,hann vann upp 4 sæti. Kevin Magnussen keyrði aftur á Kimi Raikkonen en það hafði engar afleiðingar. Adrian Sutil hætti keppni á 20. hring. Hann hafði þá haltrað á þjónustusvæðið með sprungið dekk eftir að hafa lent í samstuði við Jules Bianchi sem tók þjónustuhlé til að skipta um sprungið dekk á sínum bíl. Bianchi fékk refsingu og þurfti að aka í gegnum þjónustusvæði vegna atviksins. Vettel var sagt að hleypa Daniel Ricciardo frammúr á hring 15 sem, hann gerði án þess að mótmæla.Gutierrez á hvolfi eftir árekstur við Maldonado.Vísir/AFPMarcus Ericsson datt út á hring 36 með bilaðan bíl.Esteben Gutierrez valt þegar Maldonado lenti í hliðinni á honum við beygju 1. á hring 41. Gutierrez slapp án mikilla meiðsla. Þetta leiddi til þess að öryggisbíllinn kom út. Maldonado þurfti að stoppa 10 sekúndur á þjónustusvæðinu í refsiskyni.Kevin Magnussen hætti á hring 42 vegna bilunar í kúplingu. Eftir slakan árangur í keppninni. Hann var í þrettánda sæti þegar hann hætti. Lokaspretturinn var æsispennandi því öryggisbíllinn eyddi bilinu frá Hamilton aftur að Rosberg. Hamilton kom á þjónustusvæðið og þurfti að fá harðari dekkin undir. Rosberg hafði þegar notað harðari dekkinn. Rosberg var því rétt á eftir liðsfélaga sínum þegar öryggisbíllinn fór inn á hring 47 með betri dekk. Báðir Mercedes ökumennirnir fengu sömu skilaboðin frá Paddy Lowe tæknistjóra Mercedes „verið vissir um að koma báðum bílinum til loka,“ sem voru varúðarskilaboð. Þeir máttu ekki taka neina áhættu. Mercedes menn börðust af hörku innbyrðis. En Hamilton hélt fyrsta sæti þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir Rosberg.Jenson Button hætti keppni á hring 55 í Formúlu 1 keppni númer 250 á ferlinum.Perez í keppninni í dag.Vísir/GettyNiðurstaða keppninnar í Bahrain: 1. Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig 2. Nico Rosberg - Mercedes - 18 stig 3. Sergio Perez - Force India - 15 stig 4. Daniel Ricciardo - Red Bull - 12 stig 5. Nico Hulkenberg - Force India - 10 stig 6. Sebastian Vettel - Red Bull - 8 stig 7. Felipe Massa - Williams - 6 stig 8. Valtteri Bottas - Williams - 4 stig 9. Fernando Alonso - Ferrari - 2 stig 10. Kimi Raikkonen - Ferrari - 1 stig 11. Daniil Kvyat - Toro Rosso 12. Romain Grosjean - Lotus 13. Max Chilton - Marussia 14. Pastor Maldonado - Lotus 15. Kamui Kobayashi - Caterham 16. Jules Bianchi - Marussia Adrian Sutil, Sauber - kláraði ekki Jenson Button - McLaren - kláraði ekki Kevin Magnussen - McLaren - kláraði ekki Esteban Gutierrez - Sauber - kláraði ekki Marcus Ericsson - Caterham - kláraði ekki Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - kláraði ekki
Formúla Tengdar fréttir Mercedes-menn fljótastir í Barein Mercedes-mennirnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg voru fljótastir á báðum æfingum dagsins í Barein í dag. Þriðji varð Fernando Alonso á Ferrari. 4. apríl 2014 21:45 Nico Rosberg á ráspól Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól og liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar. Daniel Ricciardo varð þriðji. Valtteri Bottas varð fjórði. Bottas mun þó ræsa þriðji í keppninni í Bahrain á morgun. 5. apríl 2014 16:27 Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Ungur Mexíkói sló heimsmet Hafþórs sem vann samt mótið Sport Heiðruðu þjóðarmorðingja fyrir leik Sport Messi og Ronaldo verða loksins liðsfélagar Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Bjargaði mótherja sínum úr logandi bíl Sport Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 1-1| Blikar á toppnum inn í úrslitakeppni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Komst við er hann talaði um Schumacher: „Ég sakna hans“ Leclerc segir ekkert þungt milli hans og Hamilton Antonelli fór aftastur af stað en vann ótrúlegan sigur Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Fær verðlaunagripinn aftur þrem mánuðum eftir að hafa gefið hann frá sér Hamilton getur bætt met Schumacher þegar Ferrari heiðrar hann Antonelli refsað og byrjar heimakappaksturinn aftastur Lando Norris stofnar sitt eigið lið Hadjar frá í aðra keppni Norris langar ekki að vinna með öðrum liðum og framlengir við McLaren Ferrari heiðrar Schumacher á heimavelli Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Norris náði öðrum sigri Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Norris náði ráspólnum aftur Russell vann sprettinn í þriðja sinn Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina „Ég var nær því að hætta heldur en að skipta um lið“ Verstappen skrifaði undir nýjan samning Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Rússar og Belarússar fá að keppa aftur Nýliðarnir skipta um liðsstjóra Ætlar að blanda sér í baráttuna við Ferrari og Mercedes Fór á skeljarnar í sumarfríinu Ökumaður Formúlu 1 vann sér keppnisrétt á heimsmeistaramóti á miðju tímabili Sjá meira
Mercedes-menn fljótastir í Barein Mercedes-mennirnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg voru fljótastir á báðum æfingum dagsins í Barein í dag. Þriðji varð Fernando Alonso á Ferrari. 4. apríl 2014 21:45
Nico Rosberg á ráspól Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól og liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar. Daniel Ricciardo varð þriðji. Valtteri Bottas varð fjórði. Bottas mun þó ræsa þriðji í keppninni í Bahrain á morgun. 5. apríl 2014 16:27