Fótbolti

Allt á floti og enginn leikur hjá Hallberu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hallbera Guðný Gísladóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir Vísir/Stefán
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Hallbera Guðný Gísladóttir og félagar hennar í Torres áttu að mæta Napoli-liðinu í ítölsku deildinni í dag en það varð að fresta leiknum.

Það hefur rignt mikið í Napoli undanfarið og heimavöllur liðsins var hreinlega á floti eins og kemur fram í frétt á heimasíðu félagsins sem má nálgast hér.

Hallbera og félagar eru í toppsæti deildarinnar en liðið er búið að vinna sex deildarleiki í röð.

Hallbera spilar ekki með Torres á næstunni því hún er í íslenska landsliðshópnum sem er á leiðinni á Algarve-bikarinn. Fyrsti leikur liðsins er á móti Þýskalandi 5. mars.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×