Bíó og sjónvarp

Justin Bieber á Íslandi á föstudag

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Heimildarmyndin Believe verður frumsýnd á föstudaginn í Laugarásbíói og Smárabíói en í myndinni er fylgst með ungstirninu Justin Bieber í leik og starfi.

Myndin er framhald Never Say Never sem var frumsýnd árið 2011. Í báðum myndunum er einblínt á hvað kom til þess að frægðarsól Justins byrjaði að rísa.

Í myndinni eru viðtöl við móður Justins, Pattie Mallette, lærimeistara hans Usher Raymond IV, umboðsmann hans Scooter Braun og listamanninn Ludacris svo dæmi séu tekin.

Heimildamyndin hefur ekki staðist væntingar en hún hefur einungis halað inn um þremur milljónum dollara síðan hún var frumsýnd vestan hafs í lok desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.