Svona hafa sumir hlutir raðast saman Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. desember 2013 13:00 „Bjarni málaði verkið á ljóðahátíð sem ég tók þátt í í Norræna húsinu. Það var gjörningur,“ segir Sigurbjörg um verk Bjarna Sigurbjörnssonar.
Hér eru skýin snjakahvít nefnist sýning sem Sigurbjörg Þrastardóttir skáld er með í listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi. Spurð út í titilinn svarar hún: „Titillinn er lína úr ljóði sem heitir Heim um jólin og fjallar um hugarástand mitt á leið frá Hvalfjarðargöngunum meðfram Akrafjallinu út á Skagann. Það vill þannig til að ljósmynd eftir Guðmund Bjarka Halldórsson sýnir akkúrat sama svæði, á þeirri mynd eru skýin snjakahvít og fleiri element eru þau sömu og í ljóðinu.“ Eitt verkanna á sýningunni segir Sigurbjörg vera eftir gamlan prófessor í Berlín. „Ég hef aldrei hitt manninn en hann hafði lesið eftir mig ljóð, vildi þakka mér fyrir það og sendi mér teikningu, ég sá strax að hún mundi passa á bókina Stekk sem ég var að skrifa, og fékk góðfúslegt leyfi til að nota hana. Svona hafa sumir hlutir raðast saman." Sigurbjörg segir hafa verið kúnst að koma verki Bjarna Sigurbjörnssonar, málara í Kópavogi, inn í Kirkjuhvol, því það sé fimm og hálfur metri að lengd. „Bjarni málaði verkið á ljóðahátíð sem ég tók þátt í í Norræna húsinu. Það var gjörningur. Hann bað mig að skrifa eina línu á flötinn áður en hann byrjaði, þannig að línan er týnd undir öllum málningarlögunum en lifir enn í titli verksins.“ Sigurbjörg upplýsir að Kirkjuhvoll sé að fá nýtt hlutverk um áramót eftir að hafa þjónað sem listasetur bæjarins síðustu ár og áður sem prestssetur og síðan heimavist. „Mér þótti heiður að fá að vera með síðustu sýninguna þar,“ segir hún.
Menning Mest lesið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Lífið Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Lífið Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lífið „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Lífið samstarf Fleiri fréttir Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira