Baðlínan sér um allt fyrir þig! 28. október 2013 10:00 Guðmundur Haukur Reynisson, sölustjóri Baðlínunnar, í glæsilegu húsnæði Baðlínunnar í Bæjarlind. Mynd/GVA
Baðlínan býður upp á heildarlausnir fyrir baðherbergið, allt frá niðurrifi til fullnaðarfrágangs. Baðlínan er með stórglæsilega verslun og sýningarsal í Bæjarlind 4, þar sem 23 fullbúin baðherbergi eru til sýnis ásamt úrvali af því sem tengist baðherbergjum. Hugmyndafræðin á bak við Baðlínuna er að þú getir komið til okkar og fengið allt á einum stað sem þarf fyrir endurgerð baðherbergisins,“ segir Guðmundur Haukur Reynisson, sölustjóri Baðlínunnar. „Við erum eina fyrirtækið á markaðnum sem býður upp á þessa heildarlausn fyrir baðherbergið, en hjá okkur starfa sérhæfð teymi iðnaðarmanna sem sjá um verkþáttinn og svo er Baðlínan með stórglæsilega verslun og sýningarsal í Bæjarlindinni, þar sem viðskiptavinurinn getur valið allt inn á baðið,“ upplýsir Guðmundur. Hann bendir jafnframt á að starfsmenn Baðlínunnar veiti faglega ráðgjöf við val á flísum, innréttingum, tækjum og öðru efni, teikni upp fyrir viðskiptavininn nýtt baðherbergi og gefi honum svo tilboð í alla verkframkvæmdina. „Verslun Baðlínunnar er öðruvísi uppbyggð en flestar verslanir á markaðnum, en við höfum sett upp yfir tuttugu sýningarbása þar sem viðskiptavinurinn getur séð fjöldann allan af útfærslum og skemmtilegum hugmyndum að nýju baðherbergi. Margir tala til dæmis um hve skemmtilegt er að horfa á flísarnar sem þeir eru að hugsa um settar upp í réttu umhverfi og einnig innan um mismunandi útfærslur af innréttingum, sturtuklefum, lýsingu og öðrum baðtækjum,“ segir hann.Með góða iðnaðarmenn á sínum snærum Það getur verið mikið umstang að halda utan um vinnuna við baðherbergið. Til dæmis að fá réttu iðnaðarmennina, tímasetja verkið og eins að velja allt inn á baðherbergið. „Við finnum mikið fyrir því, enda talar fólk oft um að það sé orðið hálfringlað og að allt ferlið sé flókið. Það má því segja að fólk sé almennt séð rosalega ánægt með að Baðlínan bjóði upp á þessa einföldu og skemmtilegu heildarlausn,“ segir Guðmundur. Hann segir heildarlausnina hjá Baðlínunni nefnilega einfalda og að hún sé framkvæmd í mjög skipulegu ferli. „Viðskiptavinurinn getur annars vegar valið um að fá sölumann frá Baðlínunni heim til sín til að ræða við hann um hugmyndir og útfærslur að nýju baðherbergi eða hins vegar sent á okkur tölvupóst eða komið í heimsókn í Baðlínuna með ljósmyndir af baðherberginu eins og það lítur út í dag, ásamt málum og nokkrum línum að hugmynd að nýju útliti,” útskýrir Guðmundur. Út frá hugmyndum viðskiptavinarins og lausnum frá sölumönnum eru teiknaðar upp útfærslur að nýju baðherbergi og gefin tilboð í alla framkvæmdina, svo fólk sjái heildarkostnaðinn við verkið. „Ef óskað er eftir sölumanni heim, þá er skoðunargjaldið hjá okkur mjög sanngjarnt eða 10.000 kr. fyrir allt ferlið. Ef fólk hins vegar sendir okkur gögn á tölvupósti eða kemur í Baðlínuna þá tökum við ekkert gjald fyrir það.“Glæsilegt úrval Í framhaldi af hönnun og kostnaðaráætlun velur viðskiptavinurinn allar vörur inn á baðið, en úrvalið í Baðlínunni nær yfir allt það sem viðskiptavinurinn þarfnast. Glæsilegt úrval er af flísum, blöndunartækjum, sturtuklefum, sturtugleri, baðkörum, salernum, innréttingum, speglum, ljósum, handklæðaofnum, niðurföllum og svo framvegis. „Framkvæmdin sjálf er mjög þægileg fyrir viðskiptavininn en einn verkstjóri er yfir verkinu og sér hann til þess að verkið sé framkvæmt á eðlilegum tíma og gangi vel fyrir sig. Viðskiptavinurinn þarf því aðeins að hafa samskipti við einn aðila í gegnum allt verkferlið, sem er náttúrulega mjög þægilegt,“ segir Guðmundur. Hann bendir á að ef allur efnis- og tækjapakkinn er einnig keyptur hjá Baðlínunni, sjái Baðlínan til þess að öll undirefni, flísar, innréttingar, gler og tæki komi á staðinn við verkbyrjun. „Það er mjög þægilegt fyrir alla aðila, í staðinn fyrir að verið sé að kaupa hlutina á mörgum stöðum en þá er hætta á því að eitthvað fari úrskeiðis og töf verði á verkinu.“ Gæðamerki Baðlínan leggur áherslu á vönduð vinnubrögð og gæðavöru. Helstu vörumerki Baðlínunnar eru IFÖ, KALDWEI, TECE, IDEALSTANDARD, DURAVIT, HANSGROHE, VOLA, MORA, GEBERIT, RAGNO, APAVISA, GEPADI, ROCA, PANARIA, CASALGRANDE og svo mætti lengi telja. „Nú er bara að einfalda lífið og kíkja í Baðlínuna, en opið er hjá okkur alla virka daga frá klukkan 10-18 og á laugardögum frá klukkan 11-15.“ Nánari upplýsingar á www.badlinan.is
Mest lesið KS við það að kaupa B. Jensen Viðskipti innlent Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Neytendur Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Viðskipti innlent Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Viðskipti innlent Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Neytendur Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Atvinnulíf Icelandair byrjar að fljúga til Istanbúl Viðskipti innlent Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Fleiri fréttir Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira