Frábært úrval – allt fyrir hlauparann á einum stað 24. apríl 2013 06:00 Frábært úrval á einum stað og allt í einni ferð fyrir hlauparann í Útilífi Kringlunni. Mynd/Vilhelm
Í Útilífi er hægt að nálgast öll aðalmerkin í hlaupunum. Þar eru bæði stærstu merkin, eins og Nike, Adidas, ASICS og Under Armor, og einnig gott úrval frá merkjum eins og Puma, Brooks, CW-X, 2XU, Helly Hansen, The North Face, Compressport, Seger og Camelbak. „Úrval hlaupavara er mikið í öllum verslunum Útilífs en nú höfum við tekið saman allar hlaupavörurnar okkar á einn stað fremst í verslun okkar í Kringlunni og gert þær þannig enn aðgengilegri viðskiptavinum,“ segir Svanhildur Kristjónsdóttir, innkaupastjóri Útilífs. „Í hlaupadeildinni leggjum við áherslu á gott úrval og bjóðum upp á sérhæfingu í vöruúrvalinu. Þar má til dæmis nefna svokallaðar Compression-vörur eða aðhaldsvörur fyrir hlaupara. Þær gera þeim kleift að hlaupa lengur og halda betur út þar sem Compression-fatnaðurinn þrýstir vel að öllum vöðvum og eykur blóðflæðið. Einnig má fá hjá Útilífi hlaupavörur sem eru hugsaðar fyrir utanvegahlaup, til dæmis frá Helly Hansen og The North Face auk stóru merkjanna,“ segir Svanhildur. „Við munum einnig bjóða reglulega upp á faglega ráðgjöf í hlaupahorninu, frá fulltrúum birgjanna okkar en við leggjum mikla áherslu á að starfsfólk okkar sé vel þjálfað og þekki vöruna sem það selur,“ segir Svanhildur. „Við leggjum metnað okkar í að geta veitt sem besta þjónustu. Einkunnarorð okkar eru: Frábært úrval á einum stað og allt í einni ferð fyrir hlauparann.“
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira